Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1895, Blaðsíða 39

Skírnir - 01.01.1895, Blaðsíða 39
Vafningar og viðsjár. 39 og samboðnara slíkri þjðð sem Bnglendingum, að skerast í leikinn, hvað sem af kynni að hljótast, og halda uppi merki mannöðarinnar, þegar henni er traðkað á jafn-óvenjulega hrottalegan hátt. Bn ekki hafa þær raddir enn fengið neinu áorkað. Ekki er nema sanngjarnt að hafa hliðsjónáþví í þessu máli, að Bng- lendingar áttu við tveim öðrum vandamálum að snúast um árslokin, svo alvarlegum, að um stund óttuðust menn, að ófriðnr mundi af hljótast,enda litið hornauga til þeirra af flestum öðrum stórveldum, sem öfundast yflr sigursældum þeirra og velgengni um allan lieim. Annað þessarra vandamála hðfst út af landaþrætu milli lýðveldisins Venezuelu og nýlendu Englendinga í Gyana í Suður-Ameríku. Cleveland, forseti Bandaríkjanna, hafði farið að hlutast til um þrætu þessa í því skyni að halda uppi rjettindum Venezuelu, sem auðvitað hefur ekkert bolmagn til að standa Englendingum á sporði, ef í hart færi. Hann fór fram á að allt þrætumálið væri lagt í gerð, en enska stjórnin tók því fjarri, nema að nokkru leyti. Nokkrum part af landsvæði því, sem um er deilt, segj- ast Englendingar hafa átt áður en Venezuela varð til sem ríki, og jafnan síðan, án þess að Venezuelumenn hafl mótmæit eignarrjetti þeirra, enda sje það svæði nú byggt af Englendingum. Að því er þann hlutann snerti, var Salisbury ófáanlegur til að leggja málið i gerð. Þetta varð að deilu- efni milli stjörnanna í Washington og Lundúnum. Og það virðist að all- miklu leyti hafa verið Washingtonstjórnarinnar skuld. Því að hún ljet sjer ekki nægja að halda gerðinni að Englendingum, heldur hjolt húnjafn- framt fram óviðkomandi stjórnmálakenningum, sem engin von var að Eng- lendingar gætu viðurkennt, og aldrei hafa viðurkenndar verið, svo sem þeirri er kennd er við Monroe forseta, og er í þvi fólgin, að Bandaríkin skuli gæta þess, að Norðurálfuríkin hlutist ekki til um mál manna íVest- heimi.' Þar sem eins stendur á og hjer, að Norðurálfuríki er annar máls- partur í landaþrætumáli, virðist kenning þessi í meira lagi óaðgengileg, hvað sem um hana kann að mega segja að öðru leyti. Þegar þjóðþing Bandaríkjanna kom saman í byrjun desembermánaðar, benti Cleveland forseti þvi á deilu þessa, og kvað skyldu Bandaríkjanna að skerast í leikinn og senda nefnd manna til að rannsaka málið, úr því Eng- lendingar vildu engum gerðardómi hlíta. Og svo var svo sem sjálfsagt, að hann ætlaðist til að Bandaríkjamenu neyddu Englendinga til að sætta sig við niðurstöðu þeirrar nefndar. Með öðrum orðum: svo mátti að orði kveða, sem Cleveland hjeldi þvi fram á þingi þjóðar sinnar, að nú skyldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.