Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1895, Blaðsíða 43

Skírnir - 01.01.1895, Blaðsíða 43
Frakkland. 43 lagar frá ættjörð sinni vegna hluttöku sinnar í stjörnmálum. Meðal þeirra, er nú hurfu heim aptur frá Englandi, var Rochefort, hinn nafnkenndi rit- stjðri blaðsins „L’Intransigeant", og var honum tekið með kostum og kynjum á Frakklandi. Svo virðist sem Faure forseti haíi getið sjer svo miklar vinsældir meðal alþýðu manna, sem frekast verður við búizt af manni í hans stöðu. Að minnsta kosti hefur honum verið tekið með mestu virktum á ferðum sínum um Frakkland, enda gert orð á því, hve ástúðlegur hann sje í við- mðti. Hann hefur gert sjer far um að líta sem hezt eptir öllu í borgum þeim, er hann gistir, þjððstofnunum, spítölum, fjelögum o. s. frv., og yfir- leitt lofsorði lokið á frarokomu hans. En ekki varð Eibots-ráðaneytið fast í sessi, fremur en fyrirrennarar þeirra — að meðaltali hefur ekki hvert þeirra setið að völdum nærri því fullt ár síðan lýðveldið komst á fót. Þegar frá öndverðu var því spáð, að því mundi stuttur aldur áskapaður, og eptir þvi sem nær færðist þing- göngu um hanstið, urðu horfur þess övænlegri. Degar á þing kom (í októ- bermánuði) voru lögð fyrir stjórnina ógrynni af fyrirspurnum, og ein þeirra reið henni að fullu. Hún var um slælega reknar rannsóknir i einu fjár- glæfra- og mútumálinu enn; stjórn og þingmönnum var borið á brýn, að hafa þegið mútur til þess að útvega járnbraut sinni óhæfilegar skuldbind- ingar frá ríkisins hálfu. Enda þött Kibot og aðrir ráðherrar svöruðu fyr- irspurninni greiðlega og ekki virtist svo, sem þeir vildu neins dyljast, fór svo, að þeir urðu ofurliði bornir og vantraustsyfirlýsing náði samþykktum. Annars hefur úð og grúð af fjeglæfrasakargiptum á Frakklandi þetta ár, gegn þingmönnum, embættismönnum, hlaðamönnum og jafnvel dðmurum. En lítið hefur sannazt, og virðist svo, sem ekki sje árennilegt við að fást, með því að svo margir af helztu mönnum landsins ern við riðnir. Formaður ráðaneytisins, sem tók við af Ribot, heitir Bourgeois, al- þekktur skörungur i liði vinstrimanna, og voru embættisbræður hans ýms- ir merkir menn, svo að ráðaneytið þótti óvenjulega vel skipað, þar á með- al Kicard, dómsmálaráðherra, Cavaignac, hermálaráðherra, son Cavaignacs þess er bældi niður júní-uppreistina 1848, og Berthelot, utanríkisráðherra, nafnfrægur efnafræðingur. Stjórnin lýsti yfir því áformi sínu, að vinna sem mest að umbótum, er verkamönnum gæti verið hagur að. Orð ljek á því, að Ribots-stjórninni mundi ekki hafa verið sjerlega óljúft að sleppa völdum á þann hátt, sem htin gerði, og að hún mundi ekki hafa hlakkað til að þurfa að verða fyrir svörum í þinginu út af her-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.