Skírnir - 01.08.1905, Qupperneq 15
Yerzlun Islendinga og samvinnufélagsskapur.
20T
eitt innkaupsfélag fyrir þau öll. Það ætti að kaupa
inn allar útlendar yörur, er landsraenn þurfa, þar sem
þær eru beztar og ódýrastar, og senda þær beinustu leið
til Reykjavíkui'. Þá gætu millilandaferðir orðið tíðar, en
strandsiglingaskipin ættu að flytja vörur frá Reykjavík til
annara hafna á landinu. Þá fengu þau nóg að gera og
gætu borið sig, svo að eigi þyrti að kosta til þeirra stórfé
úr landssjóði eins og nú er títt. En til þess að koma
þessu á væri mjög nauðsynlegt að fá góða höfn í Reykja-
vík eða við Reykjavík, t. a. m. við Skerjaíjörð, því að
það er miklu hægra en í Reykjavík.
Það er miklu meiri nauðsyn fyrir Islendinga að eign-
ast verulega góða höfn við Reykjavík en landsmenn
alment ætla. Höfnin er svo ill í Reykjavík, að uppskipun
gengur þar bæði seint og er mjög dýr, einkum þá er
fólksekla er mikil. Við uppskipun í Reykjavík þarf
óvenjulega margt fólk, þar sem allar akbrautir vantar og
vörurnar verður að róa langa leið í land. Vörur skemm-
ast líka oft við uppskipun í Reykjavík og koma sjóvotar
í land; er eigi hægt að komast hjá því á meðan höfn
vantar. Þá er norðanveður er eða vestanveður, er eigi
hægt að vinna að uppskipun i Reykjavík, og þá verða
skipin að bíða. Eigi er heldur hægt með því fyrirkomu-
lagi sem nú er að skipa út sumum vörum, t. a. m. salt-
fiski, nema bæði sé þurt veður og kyr sjór. En alt þetta
kostar landsmænn ærið fé.
Þá er góð höfn verður gerð í Skildinganesi eða í
Reykjavík, svo að skip geta lagst þar við land og hleðsla
og afferming verður svo hæg sem vera á, þá sparast
mikið fé fyrir alla landsmenn, og þá verður þar höf-
uðstaður hinnar íslenzku verzlunar. En á móti
þessu standa útlendir kaupmenn, því að þeir vilja að
skipin gangi beint frá útlöndum á þær hafnir, þar sem
þeir reka verzlun. Ef miklar vörur væru keyptar í fé-
lagi og fluttar beina leið til Reykjavíkur eða Skildinga-
ness og þar væru reist vörugevmsluhús handa landsmöun-
um til þess að geyma þær í, en svo flyttu strandsiglinga-
skip vörurnar þaðan á hafnir viðsvegar um landið og