Skírnir - 01.04.1907, Blaðsíða 5
Tómas Sæmundsson.
101
þrek til að ráðast í slíka ferð með litlum fararefnum, svo
kostnaðarsamar sem ferðir voru á þeim tímum, en ekki
er minna, um hitt vert, hvernig hann færir sér ferðina í
nyt og hver tilgangur hennar var.
Um það ber ferðasöguhandrit, sem til er eftir hann,
órækan vott. Að vísu hefir honum ekki auðnast að ljúka
við það, og þó er það harla merkilegt rit. Það nær þang-
að til hann er kominn til Waldmúnchen, 18/8 1832, og byrjar
aftur í marz næsta ár með kafla þeim sem prentaður er
hér á eftir; á honum endar ferðasagan.
Það sem fyrst vekur athygli lesandans er það hve
fjölskygn og fjölvitur höfundurinn er. Athygli hans er
sístarfandi, hugurinn sívakandi, og er auðfundin gleðin
sem það vekur honum, að geta þannig stöðugt fræðst og
fært út sjóndeildarhringinn. Hann virðist hafa notað
hverja stund og tækifæri til að kynna sér þjóðirnar sem
hann kom til, hagi þeirra og líf í öllum þess myndum.
Frásagan ber með sér, að hún er bygð á því sem hann
liefir sjálfur athugað og hugsað, og eru hugleiðingar hans
um hvert efni jafnan viðfeldnar og bera vott um heil-
brigðan smekk og góða dómgreind. Hann kann vel að
raða efni sínu svo að lesandinn fái skýrt yfirlit yfir öll
aðalatriðin og sjái afstöðu hins smærra við liið stærra. —
Fjölorðastur hefir hann orðið um Prússa og höfuðstað
þeirra, Berlin, enda drepur hann þar á flestar hliðar
menningarinnar. —
Hann lýsir opinberum stofnunum, bókmentum, listum,
trúmálum og kirkjumálum, stjórnarháttum. Sérstaklega
kynnir hann sér nákvæmlega öll mentatæki; liann hefir
varið miklum tima til að kynna sér söfnin, hverju nafni
sem nefnast, bókasöfn, listasöfn, forngripasöfn, þjóðfræða-
söfn, náttúrugripasöfn o. s. frv. Hann hefir kynt sér allar
tegundir skóla, lýsir kensluaðferðum sumra þeirra og gerir
um það ýmsar góðar athugasemdir; hann talar um forn-
tungnanámið, ástæðurnar með því og móti, um mentun
kvenna, um helztu bækur og rithöfunda í ýmsum vísinda-
greinum, u*m fræga menn er hann hefir kynst, svo sem
Steffens, Schleiermacher o. fl. Hann lýsir stúdentalífi,