Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1907, Blaðsíða 39

Skírnir - 01.04.1907, Blaðsíða 39
Frá Róm til Napoli. 135 Eftir að eg var búinn að koma þessu í lag, gekk eg út um kveldið að skoðast um og vildi þá svo heppilega til, að eg innan um fólks- grúann rak mig á eina manninn, sem eg átti von á að þekkja í Napoli, og kominn var þangað fyrir nokkrum dögum frá Róm, herra candidatus Bindesböll1) úr Kaupmannahöfn, og hafði eg bæði hór og endrarnær, er fundum okkar bar saman á feröinni, gagn og ánægju af hans viökynningu. Yorurn við samferöa fram eftir kvöld- inu, fengum okkui að síðustu kvöldverð saman og mæltum okkur mót til að skoðast um betur næstu daga, og fór svo hvor heim til sinna híbýla. Napoli er allra borga mest á Ítalíu og ríkust að fé og mann- afla; teljast í hinni eitthvað 358,000 innbúar, þar á meðal alténd 60,000 Lazzarónar. Þykir sumum sem borg þessi að fegurðinni til, þegar á alt er litið, landslagið umhverfis, loftslagið og bæjarstæðið og hversu hér er hýst, trautt eigi sinn líka í heimi, og vissulega er það aödáanlegt og eftirtektarvert, hversu þessi staöur hefir að kalla alt það til að bera í einu, sem menn helzt gangast fyrir og láta sér finnast um, hvort sem heldur litið er til náttúrunnar dá- semda eður þess sem komið er undir að mannlegri tilstuðlun. • A landslagið umhverfis Napoli hefir verið vikið nokkuð og skrúða þann, sem jörðin er færð í árið um kring; það veröur aldrei ofsögum af því sagt, aldrei með orðum útskýrt eins og verðugt er, hvað náttúran hefir farið vel með borg þessa; það er eins og hún hafi kostaö upp á hana öllu því bezta, fegursta og hátignarlegasta, sem hún á til. Alt hvað skáldin hafa sungið um goðalundanna fegurð og indæli eður ódáinsakur, er hér oröið orð og að sönnu, og yfir hálsa þessa og flatir horfði Yirgilíus, þegar hann var að lýsa Elysium- vellinum, sælustað hinna góðu, og [Tartarus] samastað hinna ófar- sælu í 6. bók af Æneasardrápu. Hór er sífelt vor, blómi jarðar- innar hverfur aldrei; ein jurtin lifnar eða blómgast, þegar önnur fölnar; á öllum ársins tímum eru hinir dýrmætustu ávextir í köst- «m til sölu um torgin og margar þúsundir manna eiga ekkert húsaskjól, því kuldinn nær hingað ekki og sjógolan dregur svo úr <• hitanum, að vel er viðunandi. Veðurblíðan er frábær og himininn, sem skýin sjaldan byrgja, ífærður sama indæla blámanum, sem •eykur svo mjög á fegurðina í Ítalíu. Napoli liggur, eins og áður er á vikið, austan í og sunnan í fjallás eður holti og nær niður á *) Severin Cl. W. Bindesböll varð seinna biskup fyrst yfir Ála- horgarstifti, síðan yfir Lálands- og Falstursstifti (f 1871). s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.