Skírnir - 01.04.1907, Side 7
Tómas Sæmundsson.
103
fourð á íslendingum og öðrum þjóðum, því enginn efi er
á, að hann hefði orðið lærdómsríkur og nærri sanni.
Eg skal þá drepa á hin önnur rit lómasar Sæmunds-
sonar.
Fyrsta rit hans er um mentunarástand Islendinga og
tum skólamálið. Það er á dönsku og heitir: »Island fra
den intellectuelle Side betragtet«, Khöfn 1832. Hann rit-
ar það undir eins og hann hefir lokið embættisprófi, og
sýnir það að hann hefir gefið sér tíma til að hugsa um
fieira en nám sitt eitt, þó hann stundaði það vel.
Baldvin Einarsson hafði skömmu áður ritað um skóla-
málið, og lagt ritgjörðir sínar um það fyrir þá menn með-
al Dana, sem helzt var von að eitthvað mundu styðja
það (sjá Tímarit Bókmentafélagsins, 25. árg. bls. 149—■
154), en ekki hafði það borið neinn sýnilegan árangur.
Tómas Sæmundsson tekur nú í sama streng. Hann segir
að þeir sem hugsað hafi um hag Islands, reynt að gera
sér grein fyrir orsökunum til hnignunar hans og lagt í’áð-
in á hvernig hann yrði bættur, þeir hafi löngum beint at-
hyglinni að atvinnuvegum landsins, en leitt að mestu hjá
sér lýðmentun, skóla og vísindi. »En á þvi ætti þó að
byrja, því að áður en mennirnir efna til framkvæmda,
gera þeir sér grein fyrir tilgangi þeirra og hvernig hon-
um verði auðveldast náð. Undirbúningsþekkingin er því
grundvöllur framkvæmdanna, og eftir því hve mikil eða
lítil hún er, fer það hve viturlegar framkvæmdirnar verða.
Þetta er fólgið í hlutarins eðli, en reynslan sýnir og hið
sama«. Og hann bendir á sögu landsins til sönnunar því
að hnignun þess sé ekki svo mjög harðri veðráttu þess
-eða ófrjósemi að kenna, heldur vankunnáttu landsmanna
■og skammsýni, og á því skeri hafi strandað tilraunir
stjórnarinnar til að bæta atvinnuvegina.
Það er einkennilegt hve glögt Baldvin Einarsson og
'Tómas Sæmundsson, þessir tveir fyrstu frumherjar ís-
lenzkrar menningar á siðustu öld, hafa séð það og sýnt,
að allar viðreisnartilraunir þjóðarinnar verða að grund-
vallast á aukinni mentun allra landsmanna, og ætti senn