Skírnir - 01.04.1907, Page 42
138
Frá Róm til Napoli.
hafa elju á að dvelja þar lengi, ef fyrir því eiuu ágæti væri að
gangast, sem af þeim stendur. Það er landslagið umhverfis borg-
ina, fegurðin, hvar sem litið er frá sér, og landgæðin, sem helzt
mælir fram með henni. Sjálf fanst mér hún, að meginhlutanum
til, hvorki fögur nó viðkunnanleg eður skemtileg. Húsiu eru allvel
bygð og jafnaðarlega með 4—5 loftum, en víða er óhreinlega um
þau gengið; strætin eru oftast mikið þröng og heldur óþokkaleg að
undanskildu Tóledó-strætinu. Það liggur suður og vestur með
endilangri brekkunni neðarlega og neðan við torgið andspænis
kongsgarðinum niður undir sjó og og skiftir borginni í tvo hluta.
Er annar hlutinn fyrir austan hana á sléttunum og er sá meiri;
hinn er fyrir vestan upp í holtinu; eru hér strætin svo í hallanda,
að óvíða verður komið vagui, og liggja þau oftast reglulega út frá
Tóledó-strætinu upp eftir brekkunni, eða langs utan í brekkunni
jafnsíðis því. Sér óvíða á strætunum langt frá sér, en því fegurra
er í húsunum á efstu loftunum á þá hliðina, sem veit undan
brekkunni, eður upp á þökunum, sem oftast eru flöt og löguð svo,
að á þeim verði gengið. Enda sumstaðar liggja strætin hvert yfir
öðru, svo að þeir sem neðar ganga, sjá vegina eins og bryr allar
götur fyrir ofan sig í loftinu, og fara menn þar eins og neðan undir
á hestum og akfærum. Af þessu verður borgin á mörgum
stöðum heldur óslótt í brúnina til að líta, og á maður ekki
gott með að fella sig við það fyrst í stað, er hann hefii vanist
borgum, sem reistar eru á sléttlendi; torg og stræti er alt óreglulegt
niðri í borginni, en maður víðast innibyrgður og sér lítið frá sór,
og gætir þar fegurðarinnar lítið.
I Napoli eru fá hús, sem mikið kveður að, eður taki fram því
algenga, og varla er önnur borg á Ítalíu, hvar kirkjurnar bera eins
lítiö af öðrum húsum að hæð og viðhöfn eins og hér, og eru þær
þó að tölu ekki færri en 300 í borginni. Meðal annara opinberra
bygginga má helzt geta ráðhússins og dýrgripabúrsins. Hið fyrra
■er feykistór garður, nýbygður og mjög vaudaður; eru þar mörg
garðrúm í einum aðalgarði. Þar eru öll stjórnarmálefni um hönd
höfð, og ríkisskjölin eru þar til varðveizlu. Dýrgripabúrið er meðal
fyrstu húsa til hægri handar, þá kemur inn fyrir borgarhliðið, þá
er komið er þjóðveginn frá Róm. Það er mikil höll og hefir þangað
verið safnað öllum smíðisgripum, málverkum og gersemum ríkisins,
og er það mikill hægðarauki fyrir þá sem hafa skamma dvöl í
Napoli, að varla þarf annarsstaðar að leita þessháttar gripa í
Napoli-konungB ríki. Ollu, sem fundist eður aflast hefir er safnað