Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1914, Side 27

Skírnir - 01.08.1914, Side 27
Faxi. 251 um, en þá höfðu nautin stundum reynt að’rota þá við stein. Þegar Ragnar sá viðureignina, varð hann að játa með sjálfum sér, að þetta hefði hann þó ekki getað leikið: að stökkva á bak nautinu og láta það hlaupa með sig. En um leið og hann dáðist í hljóði að hugprýði bróður síns, fann hann, að þetta var að bjóða nautinu byrginn, það var ofbeldi í þessu hugrekki. Svona vildi hann ekki sigra nautið. Nautið var orðið svona mannýgt, af því að Sveinn var alt af að egna það. En ef hann, sem aldrei hafði gert því neitt, ef hann kæmi nú til þess fjarska, fjarska vingjarnlegur, þá var hann viss um, að hann gæti teymt það á hári. En í dag vildi hann láta það spekjast. Daginn eftir lagði mamma hans sig fyrir, eins og hún var vön að gera á undan hádegiskaffinu. »Snerptu undir katlinum á meðan«, sagði hún við eldastúlkuna, »egf fetla að láta renna í brjóstið á mér«. Ragnar beið, þangað til hún var sofnuð. Þá læddist hann að rúminu; hánn tók aðra hárfléttuna hennar milli handa sér og rakti hana hægt upp. Alt í einu hrökk móðir hans upp með and- fælum: »Ertu að hárreyta mig, krakki«? En þá var drengurinn þotinn sem örskot ofan stiga og út á hlað með langt hár úr höfðinu á mömmu sinni í hendinni. Nautið var tjóðrað fyrir utan túngarðinn; hann hljóp miðja vegu til þess. Nautið æddi um í tjóðrinu líkt og óarga dýr, teygði hálsinn grenjandi með jörðinni, og rótaði upp mold- inni. En þegar það kom auga á drenginn, stóð það alt í einu kyrt, og horfði á hann. Þá hægði hann ósjálfrátt á sér. Fyrst dró hann djúpt andann, svo byrjaði hann: hann fylti augun af yl til nautsins, hann opnaði varirnar með breiðu brosi, svo að skein í mjallhvítar tennurnar, og svona gekk hann öruggur nær og nær, með útréttan arm- inn og hárið af mömmu sinni milli fingranna. Nautið drap höfði, æddi síðan bölvandi á móti honum, en dreng- urinn hljóp lafhræddur og æpandi langt út fyrir tjóður- lengd. Og þegar hann loksins staðnæmdist, var hárið farið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.