Skírnir - 01.08.1914, Page 37
Pereatið 1850.
261'
Hinn 18. janúar kl. 5 e. h. áttu svo allir kennarar
fund við stiftsyfirvöldin á skrifstofu stiftamtrnanns. Þar
var einnig viðstaddur Pétur prófessor Pétursson, forstöðu-
maður prestaskólans. Á þeirri samkomu var talsverður
skoðanamunur. Rektor vildi hreinsa skólann og reka þá
seku burtu. Biskup vildi gefa piltum tíma til að átta sig,
og láta allan skólaaga hvíla sig á meðan. En rektor neit-
aði þá að taka þátt í kenslunni eða eiga nokkuð við'
»uppreistarseggina«. Biskup lét loks uppi þann vilja stifts-
yfirvaldanna, að kenslunni skyldi haldið áfram, og eftir
beiðni hans gengu allir hinir kennararnir, að Jóni Árna-
syni undanskildum, sem þá hafði tímakenslu á hendi, en
hann var líka nokkurs konar handbendi rektors, undir
það, þannig að kensla skyldi fram fara til janúarloka, því
næst upplestrarleyfi 14 fyrstu daga í febrúar, og próf
byrja í miðjum febrúar; á þessum tíma skyldi
allur agi og hlýðni upphafið. Dr. Scheving
tók að sér að gegna rektorsstörfum. Þessi ákvörðun
skyldi vera bráðabirgðaráðstöfun og svar upp á bréf rekt-
ors og kennara daginn áður: »Þennan endi hafði þá sam-
tal stiftsyfirvaldanna við kennarana«, segir rektor, »og þó
hafði rektor og kennarar vænst annars samkvæmt bréfi
stiftsyfirvalda 15. jan. ’að sérhver óregla, sem lýsti sér í
lítilsvirðingu eða þrjózku við áminningar og skipanir
kennaranna, skyldi fortakslaust varða brottrekstri eða
sviftingu hlunninda’«.
Eins og skýrsla Sigm. Pálssonar ber með sér, elskuðu
piltar rektor og virtu sem ágætan kennara, en vildu ekki
lúta honum sem skólastjóra. Þeir létu því á sér skilja,
að þeir vildu gjarnan. taka honum sem kennara, ef skóla-
stjórnin yrði öðrum falin. Þetta fyrirkomulag orðaði
biskup við rektor þann 11. febrúar, rektorsnafnið þyrfti
ekki að hafa um hönd, en hann héldi að sjálfsögðu lög-
tign sinni og launum, en þessu neitaði rektor alveg, eihB
0g eðlilegt Var; kenhir hann »ráðgjafa« piltanna, bæjar-
fógetá Kriátj. Kristjánssýni um, að hafa fundið upp á
þessari aðgreiningu. Ahnars háfði allan þennan tfma