Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1914, Page 40

Skírnir - 01.08.1914, Page 40
264 Pereatið 1850. sér í hinar margvíslegu deilur lífsins. Hann er auk þess þegar farinn að eldast, og því vegna tilhneiginga sinna til vísindaiðkana samfara vaxandi aldri og lífsreynslu, miður fær til þess að þjóna þessu vandasama embætti, og eins og nú er ástatt við skólann, og á þessum byltinga- tímum ekki fær um að halda uppi aga meðal svo margra ungra manna, sem eru gripnir af tíðarandanum, og þetta er honum því erfiðara, sem meðkennarar hans, þó að öðru. leyti séu heiðarlegir menn, geta ekki veitt honum nauð- synlega aðstoð«. í umsögn sinni um málið segir Brynjólfur Pétursson,. að þessi lýsing á rektor sé í alla staði rétt, enda ber öll- um sem þektu, saman um, að eins ágætur kennari og Sveinbjörn var, eins lélegur stjórnari hafi hann verið. Þessu næst verður það engan veginn varið, að stifts- yfirvöldin bæði hafa sýnt óhæfilegan þrekskort meðan á uppþotinu stóð og eftir á gert óheppilegar ráðstafanir. L skýrslu sinni til stiftsyfirvaldanna 17. jan. heimtuðu rekt- or og kennarar Arnljót Olafsson rekinn úr skóla. Þetta virtist næsta sjálfsögð krafa, hvernig sem málið að öðru. leyti var vaxið, en þetta þorðu þau ekki af ótta við al- menn samtök milli pilta. Astæður stiftsyfirvaldanna til þess að hafast ekkert að gegn piltum út af pereatinu, voru aðallega þær, að þau. vonuðu að piltar mundu sjá að sér með tímanum, og að feður þeirra, forráðamenn og aðrir venslamenn þeirra í bænum mundu sýna þeim fram á, að þeir hefðu gert rangt í að hegða sér svona, en þetta reyndist á alt annan veg, því samúð bæjarmanna og annara var yfirleitt með pilt- um. — Þegar það því var sýnt, að tíminn mundi ekki ætla að hafa nein betrandi áhrif á pilta, segjast þau hafa tekið málið á ný til yfirvegunar. Hafi þá verið um tvent að gera, að uppleysa skólann alveg, því það hefði orðið' afleiðingin af brottrekstri forsprakkanna, eða halda skól- anum við til vorsins, þangað til stjórnin gæti úrskurðað' málið, og þann kostinn hafi þau tekið. Ástæður þær sem þau tilfæra gegn uppleysingu skólans eru þær, að þetta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.