Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1914, Page 76

Skírnir - 01.08.1914, Page 76
300 Hafa plönturnar sál? eða þegar skáldið lætur Guðrúnu Gjúkadóttur segja: „Einstæð emk orðin sem ösp i holti, fallin at frændum, sem fura at kvisti, eða þegar Bjarni Thorarensen kveður um látinn vin sinn: „Viður var mér áður vaxinn fríður að síðu, vestan ég varði hann gusti, varði’ hann mig austanblástrum11, eða þegar Sigrún hans kvartar um að hún skrifi illa og hann svarar með þessum indælu orðum: »Nær bað rós, þá risti rún, af vindi skekin, nauðug á sjávarsandi, sér að fyrirgefa ?“ — þá finst okkur þetta alt jafneðlilegt og satt eins og sálmurinn: »Alt eins og blómstrið eina«. Og þegar Einar Benediktsson segir: „Mér finst eins og speglist fjötruð sál í frjóhnappsins daggarauga11, þá lýsir hann einmitt tilfinningu sem er æfagömul í brjóst- um mannanna og enn á sér þar voldug óðul. Þjóðirnar hafa í bernsku trúað því að plönturnar hefðu sál og sagt er að margar miljónir Indverja trúi því enn í dag, eins og þegar »Sakuntala« var rituð: »Sakúntala mín!« sagði önnur vinstúlkan, »þú átt mikið hrós skilið fyrir það, að þú hlýðir boðum Kanva föður okkar og vökvar trén svo kostgæfilega*. »Ekki skaltu halda«, sagði Sakuntala, »að það sé einungis skipun föður okkar, sem gerir mig kost- gæfna, þó hún ein mætti vera mér nóg hvöt. Það kem- ur eins mikið til af því, að eg sjálf elska þessar plöntur eins og eg væri systir þeirra. Eg skoða vandlega á þeim hvern nýútsprunginn laufhnapp, og þykir svo hjartans vænt um, þegar blessað ungviðið, sem eg vökvaði kvöld- inu áður, vaknar endurhrest á morgnana og teygist með limar sínar og laufblöð upp á móti ljósinu eins og til að færa þakkir; eða þá þegar trén eru þyrst og benda mér biðjandi með sínum laufkviku greinum, að koma og vökva
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.