Skírnir - 01.08.1914, Blaðsíða 101
Ritfregnir.
325
um, eSa réttara sagt, móður hans, sem þá var nýlega orðin ekkja,
ókeypis kenslu og viat fyrir hann í kaþólskum skóla íFrakklandi;
var það eftir vísbending frá Einari sál. Ásmundssyni í Nesi, að
hann var til kjörinn fararinnar.
Fyrstu sjö kapítular bókarinnar eru um aðdrög og undirbúning
fararinnar, skilnaðiun við móður hans og áminningar hennar. Er
frásögnin þar víða mjög þýð og innileg. Hinn hluti bókarinnar,
eða 16 kapítular, er um sjóferðina og það sem við bar á henni,
alla leið frá því hann fer á skipsfjöl á »Valdemar« frá Rönne norð-
ur á Akureyri og þar til hann stígur fæti á land í Kaupmannahöfn
umkringdur af fjölda Hafnarsveina, sem þyrpast að honum og stara
á íslenzku sauðskinnsskóna hans, sem tröll á heiðríkju, óvanir slík-
um fótbúnaði.
Hór er eigi timi né staður til að rekja innihald bókar þessar-
ar, enda er efnið yfirleitt fremur smávægilegt, svo sem oft vill
verða í ferðasögum, en þó er lestur hennar ánægjulegur, því að
yfir henni allri hvílir einhver góðmenskubragur og framsetniugin
er svo lótt og lipur. Hún er ný sönnun þess, að »það er stíllinn,
sem lætur bækur lifa«. — Og það ráð vildi eg gefa þeim löndum
mínum, sem einungis eru stautfærir í þýzku, að lesa bók þessa; eg
þekki enga lóttari á því máli, enda auðskilið að svo sé, því að hún
hefir að nokkru leyti íslenzka hugsun og framsetning að bakhjalli.
Allur er frágangur bókarinnar hinn vandaðasti og verð á henni
innbundinni í smekklegt band einungis 4 mörk og 80 pfennig (hór-
umbil 4 kr. og 30 aurar).
Jón Jakobsson.
Pétnr Zophoníasson: Ættir Skagfirðinga 1910. Reykjavík
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. 1914.
Bók þessi er 440 + VIII. bls. í stóru 8 bl. broti, og er henni
skift í þrjá kafla. í hinum fyrsta eru raktar ættir 659 manna,
er búsettir voru í Skagafirði 1910, í öðrum eru raktar ættir 104
manna »mest úr Skagafirði«, og i þriðja kaflanum eru fornættir
raktar, en það er föður- og móðurætt Lofts ríka, ætt Kristínar
Oddsdóttur fylgikonu hans, ætt (Kristínar Eyólfsdóftur) konu Gísla
biskups Jónssonar og ætt Vatnsfjarðar-Kristínar. Eru þetta ættir