Skírnir - 01.08.1914, Page 102
326
Ritfregnir.
hinar helztu, er tengja saman ættir núlifandi manna viS landnáms-
ættirnar.
t>að má vera öllum þeim ljóst, er nokkuð hafa fengist við ætt-
fræðisrannsóknir og þess háttar, hvílík feikna vinna liggur í bók
þessari, enda hygg eg að meiri vinna liggi í fáum bókum, er hér
hafa komið út hin síðari ár. Hefir höf. sýnt alveg dæmafáan áhuga á
þessu starfi sínu, og unnið ættfræðinni mikið gagn því að hann
hefir grafið upp ýmsa ættliði og ný sambönd við kunnar ættir, er
áður voru með öllu óþekt, og þótt hór sóu aðallega skagfirzkar ættir
raktar, þá eru Skagfirðingar vitanlega margir hverjir ættaðir víðsveg-
ar að af landinu, og gefur bókin þar af leiðandi ýmsar mikilsvarð-
andi upplýsingar um ættir manna í öðrum héruðum. En þess
geng eg eigi dulinn, að víða mun ættfærslan vera bygð á senni-
legum getgátum, en eigi á fullri vissu, án þess þó að þess sé getið,
sem hefði þó verið nauðsynlegt til þess, að þeir er nota bókina,
gætu gengið úr skugga um, hvort fyrir þessu sóu óyggjandi beim-
ildir eða eigi, og nauðsynlegt verið að víðar hefði heimilda verið
getið neðatimáls en gert hefir verið.
Ættir núlifandi manna, þeirra er bókin getur, eru raktar á
þann veg, að karlleggur er rakinn svo langt sem kunnugt hefir
orðið, en jafnhliða eru ættir hlutaðeigandi kvenna raktar aliítarlega,
en venjulega er sú ættfærsla allflókin, svo hætta mun verða á, að
ýmsum muni veitast full erfitt að átta sig á henni. Sá ljóður er
og á ættfærslunni, að víða er vÍBað til þess, er síðar átti að koma,
en a hinum tillvitnaða stað er ekki framar rakið, heldur er þar
aftur vísað til enn annars staðar. Það er og of algengt, að á hin-
um tilvitnaða stað finst það ekki sem til var vísað, og hefir höf.
leiðrétt aftan við bókina allmikið af þessum röngu tilvitnunum, en
þó hvergi nærri til hlítar. Ef höf. hefði gætt þess að vísa aldrei
til þess er ókomið var, heldur að rekja ættina, þar sem hún kom
fyrst fyrir, og að vísa jafnan til þess er áður var komið, þá hefði
mátt komast að mestu hjá þessu, og ekki sízt var full þörf á að
gæta þessa uákvæmlega, þar sem bókin var ekki fullbúin, þá er
byrjað var á prentuninni, heldur var handritið jafuóðum sett í
prentunina og það var skrifað, svo að oft hefir verið vitnað til þess,
er ekki einungis var óprentað heldur einnig óskrifað. A höf. því
sínu góða minni að þakka, að ekki hafa fleiri rangar tilvitnanir
komist í bókina, en raun hefir þó á orðið.
En þrátt fyrir ýms missmíði er á bók þessari eru, þá mega
allir þeir, er ættfræði unna, vera höf. þakklátir fyrir unnið starf