Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1914, Side 109

Skírnir - 01.08.1914, Side 109
TJtlendar fréttir. 333 etjórnina. En svo óvingaSist með honum og furstanum, og Essad krafðist lausnar frá embættinu. Var þá uppreisn í héraðinu kriug- um Durazzó, en það er höfuðborgin og aöseturstaöur furstans. Essad var grunaður um, að hann stæði á bakviö þær óeiröir. Vil- hjálmur fursti baðst þá hjálpar utan að frá, og sendu ítalir og Áusturríkismenn herskip til Dúrazzó. TJrðu nú skærur milli upp- reisnarmanna og varnarliðs furstans, og var skotið á hús haus og sagt, að Essad pasja hefði sjálfur hleypt af fyrsta skotinu. En árásin var stöðvuð af Austurríkismönnum og ítölum, frá herskip- unum á höfninni. Síðan var Essad tekinn fastur og fluttur út á herskip Áusturríkis, en þaðan yfir til Ítalíu og látinn þar laus gegn loforði um, að láta málefni Albaníu afskiftalaus og fara ekki heim þangað aftur nema með leyfi furstans. En eftir þessa viður- eign hefir uppreisnin mjög magnast í landinu. Furstinn helzt þar aðeins við með hjálp útlendinga, og eitt sinn flýði hann bústað sinn þar með fjölskyldu sína og leitaði hælis á herskipi frá Italíu þar á höfninni. Essad pasja var mikils metinn maður þar í landinu og á þar miklar eignir. Tyrkir, sem þar eru fjölmenn- ir, vilja ekki hafa yfir sér kristinn fursta, og óska helzt að standa undir soldáni Tyrkja í Konstantínópel. — Áður en þessi síöasta orrahríð hófst höfðu Grikkir í Epírus, sem er syðsti hluti Albaníu- ríkisins, gert uppreisn, og neituðu þeir harðlega að þeir yrðu sefctir í eitt ríki með Albönum, en kváðust vilja sameiningu við Grikk- land. Lýstu þeir yfir, að ef þeir fengju þetta ekki, þá mynduðu þeir sérstakt ríki. Lauk þessu svo, að þeir fengu allríflega sjálf- stjórn í sambandi við Albaníu. En líklegt er, að ekki líði á löngu áður en þeir hafa sitt mál fram og sameinast Grikklandi. Stór- veldin eru nú í mestu vandræðum með Albaníu. Þau eru að senda þangað herskip til þess að halda öllu í skefjum, en lítil líkindi til að þeim takist að stilla þar til friðar að fullu. Er mjög vandséð enn, hvað verða muni um þetta nýja furstadæmi, og engin líkindi til að Vilhjálmur fursti haldist þar við til langframa. Hervarnamál í Svíþjóð. Síðastliðinn vetur urðu miklar skær- ur í sænska þinginu út af hervarnamálum. Ýmsir, og þar á meðal einna fremstur í fokki Sven Hedin Asíufari, hafa vakið þar mikla hreyfingu á síðustu missirum í þá átt, að fá mjög auknar hervarnir landsins, einkum þeim megin, sem að Rússum veit. Telja þeir Skandinavíuskaganum yfirvofandi hættu búna frá Rússlandi, og hefir það aukið mjög á þann ótta, að hvað eftir annað hefir nú á síðkastið orðið uppvíst um hernjósnir frá Rússa hálfu í Svíþjóð.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.