Gangleri - 01.01.1870, Síða 3

Gangleri - 01.01.1870, Síða 3
3 mnnum vjcr því af fremsta megni gjöra oss far um, að rit vort gangi undir þessum merkjum. Pví munuin vjer veita rdm í riti voru ritgjörðum um öll þau málefni, er oss virðast nokkru varða, svo sem um stjórnarháttu vora frá efsta stigi og til hins neðsta, eður landsstjórn, fjórðunga- og hjeraðastjórn, sveita- og heimilastjórn; um heilbrigðismálefni vor og hagfræði; um búnað og verzl- un og atvinnuvegi vora til lands og sjávar; uin náttúr- una og skorður þær, er hún opt setur atvinnuvcgum vorum og framkvæmdum mcð 11. Auk þessa munum vjer gefa lesendum vorum svo greinilegt yfirlit sem auðið er, yfir helztu frjettir, einkum innlendar. Svo viljum vjer eigi heldur gleyma því, er vjer álítum geti orðið til skemmtanar, og þar til teljum vjer einkum sögur og kvæði. Þótt vjer ætlum oss að gjöra allt það að umtals- efni, er vjer þegar höfum talið, má þó enginn ætlast til, að vjer, ekki í stærra riti enn þetta er, getum gjört það nerna smátt og smátt. Á hinn bóginn höfum vjer á- sett oss, að hafa ofnið í hverju hepti fyrir sig svo fjöl- breytt sem rúmið leyfir. Auglýsingar og æfiminningar munum yjer að vísu taka; þó eigi í ritið sjálft, heldur á kápuna eða í auka- blöð, cr þá fylgja ókeypis. Eins og vjer að einu leytinu treystum umburðar- lyndi landa vorra, eins vonum vjer og á hinn bóginn, að góðir menn muni verða til þess, að styrkja þetta fyr- irtæki vort með því, að senda oss bæði frjettabrjef og ritgjörðir, er samsvara stefnu og tilgangi rits vors. En berist oss einhvcr sú ritgjörð, sem vjer einhverra or-

x

Gangleri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.