Gangleri - 01.01.1870, Blaðsíða 10
10
er það í ináli þessu hlýtur að hafa að lögum og eptir
eðli inálsins; hvað þýddi þá, að það hefði breytt frum-
varpinu í nokkru „verulegu", og hvað átti það með það
í raun og veru ? Alls ekkert. Og hvað þýðir það, að
þingið hefði breytt því í hinu óverulega, eins og
minni hlutinn gjörði ? það, að gjöra að vild stjórnar-
innar, smjaðra sig fram við hana og hjálpa til, að gjöra
landið að undirlægju ríkisþings Dana, og gjöra það þann-
ig ver farið en það er nfi, eður í einu orði: ógagn, já,
tjón landi og lýð I þetta hefir meiri hlutinn ekki sam-
vizku til að gjöra, og tekur því það eina ráðið, sem rjett
er, sem sje, að afbiðja frumvarpið í heild sinni sem lög.
Ilann færir og nægar ástæður fyrir því, hve óhagfelld
og þýðingarlaus sje ábyrgð hins íslenzka ráðgjafa eptir
frumvarpinu ; hversu rjetti íslands sje hallað með þvf,
að fá ríkisþingi Dana í hendur löggjafarvald yfir oss í
öllu verulegu ; hversu rjetti hinnar íslenzku þjóðar sje
liallað með því að svipta hana atkvæði um hin almennu
mál ríkisins, en heimila ríkisþinginu { saineiningu við ráð-
herrann skattálögu vald yfir oss til þessara mála ; hve
fjarstætt það sje, að demba uppá oss grundvallarlögum
Dana ; og loksins hve ónógt árgjald það sje, er frum-
varpið býður, — sem þó var óvíst að fengist —, til
þess, að nokkur stjórnarbót komist á hjá oss í fram-
kvæmdinni, og hve mikils árgjalds vjer gætum krafist,
sem leigna af skuld vorri hjá Dönum, ef rjettur vor væri
eigi fyrir borð borinn, sökum magnleysis vors.
Engar af ástæðum meiri hlutans sjer minni hlutinn
sjer fært að „hrekja“ og reynir það heldur ekki; enda
getur maður hvervetna lesið á milli línanna hjá honum,
að hann, undir niðri, er £ Öllu verulegu saradóma