Gangleri - 01.01.1870, Page 35

Gangleri - 01.01.1870, Page 35
35 inu á Efnue, mælfi greifinn. Þaö var eins og það væri cittlivert hik á fylgdarmanninum, en Weðer rak eptir honum, og kvað hann ekki mundu hafaverraaf að hraða sjer, því að hann sagðist ekki horfa í að borga honum vel fylgdina. „Þá er bezt að halda af stað*, mælti fylgdarmaður. „Já, en dótið mitt verðurðu að tak með þjer“. „Ætlið þjer að hafa nokkuð með yðui“ ? „Já, það skil jeg ekki við mig“. BJeg bið forláts, jeg hugsaði, að þjer munduð skilja það hjerna eptir ; það væri viss- ara“. sÞað dettur mjer ekki í hug“, mælti greifinn. „Svo þjer ætlið upp að g a m I a klaustrinu“ ? sagði fylgdar- maðurinn enn. „Er jeg ekki bóinn að segja þjer það“! „Þjer eigið þá líklega kunningja þar“? „Ónei, en jeg hefi brjef til ábótans“. „Til fyrirliðans, viljið þjer segja“. „Til ábótans segi jeg ; en flýttu þjer nú ; er jeg ekki búinn að lofa þjer ríflegri borgun fyrir fylgdina“! „Yð- ur væri þá, ef til vill, sama, þó að þjer Jykjuð mjer fyr- irfram“ ? „Því þá það“ ? „Af því að það er svo fram- orðið, að við náum ekki þangað, fyrr enn einhvern tíma í kveld, og jeg þarf að flýta mjer heim á leið aptur“. „Jeg vona þó að við náum í kveldverðinn í klaustrinu“ ? „í klaustrinu" ? „Já í Nikulás-klaustrinu“. „(3, því er óhætt; mjer er nær að halda, að þ a r sje borðað meira um nætur enn daga“. Við þetta svar hló greifinn og borgaði honum undir eins ríkulega fyrir-fram, og með það hjeldu þeir af stað. Þess verður að geta hjer, að nokkru eptir að munk- arnir flúðu klaustrið, tóku stigamenn sjer bústað f því; fyrirliði þeirra hjet Gaetano, og stóð ölluin eyjarbúum stuggur af honum og liði hans. Þetta vissi WTeðerekki,' en fylgdarmanni hans var það fullkunnugt, og því undr- 3*

x

Gangleri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.