Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Page 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Page 1
Rannsókn í Rangárþingi og vestan- til í Skaftafellsþingi 1888 og 1885, einkanlega í samanburði við Njáls sögu. Eftir Sigurð Vigfússon. Af öllum þeim fjölda af sögum, er gerzt hafa hér á íslandi í fornöld, er óhætt að fullyrða, þegar á alt er litið i heild sinni, að Njáls saga er í fyrsta flokki1; hún er yfirgripsmikil og viðburða- rík, við hana koma meira eða minna nær allir höfðingjar lands- ins, sem þá vóru uppi; ættartölur eru þar og miklar. Málið á sög- unni er snildarlegt, setningarnar stuttar og framsetningin ijós yfir 1) þegar meta skal, hvað fornsögur vorar hafa til síns ágætis, þarf að skifta þeim í flokka eftir gœðum og efni, enn þó getr þetta að sumu leytí orðið álitsmál, því ein saga hefir það til að bera, sem önnur hefir ekki; þær sögur, er bezt lýsa þeim stöðum, er viðburðrinn gerðist á, eru því bezt lagaðar til rannsóknar. það er og annar aðaltilgangr þessa fólags, að leiða rök að því, sem unt er, að þeir upphaflegu söguritarar hafi bygt á þeim frásögnum, er sannar vóru, enn ekki að það sé síðari tíma tilbún- ingr. það væri næsta kynleg ósamkvæmni, að þegar maðr sér það sem þegjandi vott, að staðarlegar lýsingar eru svo réttar í sambandi við við- burðina, eins og þær væru jafnvel ritaðar þegar þeir gerðust, enn viðburð- irnir sjálfir skyldu þó vera meira eða minna tilbúningr, og jafnvel ritaðir fyrst 2—300 árum síðar; ég hygg, að menn hefðu þá og leyft sér að »kríta liðugt«, sem komizt er að orði, um staðarlegar lýsingar; það má og ætla, að bæði innlendir og útlendir frœðimenn hefðu um síðir orðið leiðir ár þess konar sagnafrœði. Og konungar í Noregi hefðu þá ekki fengið Islendinga til að rita sögur þær, er þeir vildu vanda láta, hefði ekki sagnafœði þeirra verið í miklu áliti og þótt áreiðanleg; útlendir frœði- menn myndu þá heldr ekki hafa vitnað til þeirra í ritum sínum, eins og þeir gera. Enn það yrði of langt mál hér að fara lengra út í þetta efni. Hitt er annað mál, að nokkuð kann að vera aflagað í sögum vorum hjá síðari afriturum, og það er einmitt það, sem þarf að rannsaka. i

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.