Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Blaðsíða 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Blaðsíða 30
30 verðr ekki vel komizt hjá getgátum; það er þó mesti munr að hafa getgátur um það efni, sem þýðingarmikið er, og nauðsyn ber til að minnast á, heldr enn um það, sem litlu varðar; það er þó ljóst, að á einhvern hátt hefir þó sagan hlotið að myndazt; bæði Njála og aðrar vorar merku fornsögur bera það með sér, að mentaðir menn þeirrar tíðar hafa átt þar hlut að máli; þær eru ekki bein- línis ritaðar upp eftir alþýðusögnum út í loftið, þó sumir hafi það ætlað; það má leiða rök að þvi. Hver ritað hefir Njáls s. í fyrstu, eða þá sett söguna saman í eina heild, verðr heldr ekki sagt með neinni vissu; enn það er eins, einhver eða einhverjir hljóta að hafa gert það; ýmsra manna hefir verið til getið, og þarf eg ekki að tilgreina það, því eg ætla mér ekki að ákveða þetta með neinni vissu. Að sagan er rituð þar eystra á Rangárvöllum, eða þar nálægt, að minsta kosti alt það, sem því héraði við kemr, er varla efamál; eins og aðrar fornsögur vor- ar hljóta að vera yfir höfuð ritaðar í þeim héruðum, sem þær gerð- ust eða aðalviðburðir þeirra ; það væri miklu óeðlilegra, að ætla hið gagnstœða. Víða í Njálss. eru innanhéraðs orðatiltœki, sem við- höfð eru þar enn í dag, enn sem ekki eru höfð um sama efni í öðrum héruðum eða lengra burtu ; stundum er sagan stuttorð, og lýsir ekki mjög sögustaðnum, rétt eins og söguritarinn geri ráð fyrir, að hann sé mönnum kunnr; aftr bregðr fyrir nákvæmni mik- illi sumstaðar, og þá lýsingin fjölorðari, jafnvel þegar lengra dregr frá. Eg veit ekki til, að það séu, sem teljandi sé, nokkur þess kon- ar orðatiltœki í Njálu um Rangárvelli, sem maðr, er hefir þekk- ingu á þvi, þurfi að hneyxlast á, sé það rétt skilið og rannsakað, og tekið það úr handritunum, sem réttast er og bezt á við ; og sama gildir þá aðra sögustaði i Njálu, sem eg hefi komið á. f>að kennir því af miklum ókunnugleika, að taka það sem gefið án frekari rannsóknar, að af staðarlegum lýsingum í Njálu um Rang- árvelli megi draga þá ályktun, að söguritarinn hafi ekki þekt þar til, eða verið ókunnugr þar í héraðinu ; fram á þetta mun verða sýnt frekara siðar. Ef nokkurs mætti til geta um, hver fyrst hefði ritað meira eða minna af Njálu, þá þætti mér líklegast, að það væri Eyjólfr prestr Sæmundsson i Odda ; það kæmi vel heim við það, sem áðr er sagt; hann gat haft sögnina rétta bæði frá föður sínum, forfeðrum og Haukdœlum ; Eyjólfr var lærdómsmaðr mikill og hefir haldið skóla i Odda. Um hann segir meðal annars, Bisk- upa s. i. þ>orláks biskups sögu hinni elztu, bls. 90, þegar þau þ>or- lákr og móðir hans fóru í Odda : „£>á réðust þau mæðgin í hinn æzta höfuðstað, Odda, undir hönd Eyjólfi presti Sæmundssyni, er bæði hafði höfðingsskap mikinn ok lærdóm góðan, gæzku ok vitsmuni gnægri enn flestir aðrir, ok heyrðum vér þann sæla þ>or- lák þat vitni bera hánum, at hann þóttist trautt þílíkan dýrðarmann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.