Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Síða 16

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Síða 16
ió er sagt hér að framan; verðr þetta þá nær í vestr-útvestr frá lög- réttunni, og er því rétt til orða tekið, þó það sé ekki beint í vestr; fornmenn vóru oft ekki svo nákvæmir með þess konar, eins og eg hefi svo oft sýnt fram á áðr, sjá „Alþingisstaðinn“, Arb. fornleifafj. 1880 og 1881. í>að er hér að framan sýnt, að fjórðungsdómarnir höfðu engan ákveðinn stað árum saman, og heldr ekki búakvið- irnir; þar er því þetta: „vestr á árbakka“ tekið eftir sjónarvottum; enn fimtardómrinn var ákveðinní lögréttu, Grágás Kb. I. 43. kap., enn ekkert er í Grágás tiltekið um stað fyrir búakviðinn, heldr segir 35. kap.: „ok queþa a hvar þat er“, sem sýnir, að staðrinn var ó- ákveðinn; það er og auðvitað, að hlutaðeigendr hafa ráðið hvar þeir skyldu vera, og hefir það farið eftir því, sem þeim þótti hent- ugast í það og það sinn og bezt næði var; og einmitt vegna þess er það tiltekið hér á þessum báðum stöðum, að það var ekki fastr vani, að kviðrinn væri vestr á árbakka, enn söguritarinn segir blátt áfram svo nákvæmlega hér frá öllu, sem honum er unt og hann vissi; það er heldr ekki eins og þetta væri sá eini hentugi staðr fyrir kviðinn; í kringum lögréttuna var autt svæði og nóg rúm á allar hliðar. jpað er því sjáanlegt, að þetta hlýtr að vera tekið eftir sjónarvottum og hefir fylgt þeirri upphaflegu frá- sögn. ý>egar hér var komið málinu, nefndi Mörðr sér votta og beiddi þá níu búa framburðar um kviðinn, að bera annaðtveggja af eða á. Búar Marðar gengu þá að dómi, taldi einn fram kviðinn, enn allir guldu samkvæði; þeir höfðu allir unnið fimtardómseið „ok báru flosa sannan at sökinni, ok báru á hann kviðinn11; báru þeir svo skapaðan kviðinn fram i fimtardóm yfir höfði þeim manni,er Mörðr hafði sök sína fram sagt yfir, síðan báru þeir kviðu alla, er þeir vóru skyldir að bera til allra saka, og fór það alt löglega fram. Eyjólfr og þeir Flosi sátu um að rengja og gátu ekki að gert. jþá býðr Mörðr Flosa eða þeim, að taka til varna, „því at nú eru fram komin sóknargögn öll — boðit til eiðspjalls, unninn eiðr, sögð fram sök, borit stefnuvætti, boðit búum í setu, boðit til ruðningar um kviðinn, borinn kviðr, nemndir váttar at kviðburði“; síðan nefndi Mörðr sér votta að öllum þessum gögnum. ý>á stóð sá upp, er sökin hafði yfir höfði verið fram sögð, og „reifði“ málið alt frá, upphafi og til þess er hér var komið, og skýrir söguritarinn frá hverju atriði út af fyrir sig. Mörðr nefndi sér þá votta, „nemni ek í þat vætti“, sagði hann, „at ek banna flosa þórðarsyni eða þeim manni öðrum, er handselda lögvörn hefir fyrir hann, at taka til varna; því at nú eru öll sóknargögn fram komin, þau er sökinni eigu at fylgja at reifðu máli ok svá bornum gögnum. síðan reifði reifingarmaðr þetta vottorð“. Nú var þá þetta mikla fimtardómsmál búið til dóms, og hafði

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.