Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Page 25

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Page 25
25 þeim ok bað þá alla velkomna, ok gaf þeim rúm at sitja hjá sjer“. Að síðustu fóru þeir Ásgrímr til Möðruvellingabúðar. „ok er þeir kvámu í búðina, sá þeir, hvar guðmundr ríki sat ok talaði við einar kondlsson fóstra sinn. hann var vitr maðr. gengu þeir þá fyrir guðmund. hann tók þeim vel ok lét ryðja fyrir þeim búðina. spurð- uz þeir tíðinda“. f>að er eins með þetta, sem hér segir, og það áðr talda, nefnilega, að þegar þeir komu í búðina, sáu þeir að Guð- mundr sat og talaði við Einar Konálsson fóstra sinn; hann var vitr maðr. þetta kemr því efni, sem hér er um að rœða, í raun- inni mjög lítið við, enn hefir sjáanlega fylgt þeirri upprunalegu frá- sögn, einungis til að segja frá þessu eins og það kom fyrir sjónir; þessi setning hefði því hlotið að falla i gleymskunnar dá eftir marga mannsaldra, og engum síðari tíma söguritara, sem þá var að skapa sögu, hefði dottið í huga, að búa hana til, því hún gat heldr ekki prýtt neitt söguna eða sagan þótt skáldlegri fyrir það ; enn einungis prýðir hún, af því þetta stendr í sambandi við þá lifandi frásögn, sem bæði hér í liðsbóninni og annarstaðar lýsir sér. Slík smáatriði sýna oft bezt, af hvaða bergi vorar merkari fornsögur hljóta að vera brotnar. En ef vér nú vildum setja svo, að Njáls s. væri fyrst rituð og saman sett á síðari hluta 13. aldar, þá hlyti hún að vera mestmegn- is tilbúningr, því það er lítt hugsanlegt, að menn hefðu getað mun- að söguna eftir nær þrjár aldir, eins og hér að framan er nokkuð á vikið, því svo gamall yrði mestallr fyrri hluti sögunnar ; það kann að vera, að menn hefðu munað höfuðviðburðina, enn þó varla til að geta sagt frá þeim með þeim rökum, sem einkenna historiska sögu, og með því að viðburðirnir í fyrri hluta sögunnar eru nokkuð marg- brotnir og gerðust heldr ekki allir í einni vissri ætt, er sögnin hefði getað haldizt í. Annað er hitt, að það yrði nokkuð óeðlilegt, að fara þá fyrst eftir allan þenna tíma, að hugsa til að fœra þetta í letr og rannsaka það mikla efni, enn láta það ógert allan þann friðartíma, sem að miklu leyti hélzt út tólftu öldina, og því ó- eðlilegra yrði það, þegar vér gætum að því, að aðrir viðburðir vóru þá komnir á milli, og sem vóru miklu fleiri og stórkostlegri, nefni- lega á Sturlungatímanum, þá varð borgarastríð á landi hér, sem kunnugt er, sem Norðlendinga-, Yestfirðinga- og Sunnlendingafjórð- ungar tóku þátt í, og afleiðingarnar urðu þær, að þá byrjaði nýtt tímabil í sögu landsins. Allir þessir miklu viðburðir hafa hlotið að gefa frœðimönnum nýtt umhugsunarefni og nóg að starfa. Enn hvað sem þessu líðr, þá er enn eitt: andi laganna gengr nærri gegnum alla Njáls s. þ»ví verðr ekki neitað, að Njála sýnir lífið á fingvelli um alþingistímann í sinni réttu mynd, og að málasókn- um og lagadeilum er lýst með hinni mestu snild, og um lögin er rit- að bæði með fegrð og tilfinningu fyrir þeim. Enn einmitt slík til- 4

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.