Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Page 48
Corporal-taskan frá Skálholti.
Þessi merkisgripur er nr. 421 á Forngripasafninu og er lýsing
af honum í »Skýrslu um Forngripasafn Islands« II, bls. 34—38, eft-
ir Sigurð Gruðmundsson málara. Árb. flytur nú mynd af grip þess-
um, þvi miður ekki svo stóra né fullkomna sem skyldi til þess að
menn geti af henni gert sér glögga grein fyrir hversu þessi skraut-
legi gripur lítur út.
Þar eð lýsing Sig. Guðmundssonar er all-nákvæm virðist óþarfi
að lýsa grip þessum frekar hér. Þess skal þó getið, að blómkerið,
sem blómið á milli Maríu og Gabríels hefir staðið í, hefir fallið af;
mun það hafa verið myndað með gyltri silfurplötu, sem saumuð
hefir verið á fiauelið líkt og geislasveigurinn yfir höfði Maríu. Fyrir
ofan blómið vottar fyrir í flauelinu að verið hafi eitthvað á saumað;
hefir það vafalaust verið dúfumynd, nefnilega heilagur andi, og hef-
ir hún lika verið úr giltu silfri að likindum. Á rollu Gabríels hefir
staðið — og stendur, en mjög ógreinilegt — heilsun hans á latínu,
upphafið: AVE MARIA GRATIA PLfena); á rollu Maríu hafa og
staðið nokkur orð á latínu af svari hennar.1) — Corporal-taskan er
26 sm. á hvorn veg að stærð.
í lýsingu Sig. Guðmundssonar er gripur þessi kallaður »Jcorporall,
eða patínudúkur sem nú er kallað«. Þetta er að því leyti rétt að
gripur þessi hefir bersýnilega verið notaður á síðustu tímum fyrir
patínudúk (»palla calicis«) og það ef til vill lengi. Sigurði er full-
ljóst að þetta sé ekki corporale í sömu merkingu og katólsku mál-
dagarnir geta um, þ. e. corporal-dúkur (»palla corporalis*), sem var
úr hvítu líni1), en aftur á móti kemur það ekki glögt fram í lýsing-
unni hvað þessi gripur hafði þá verið upprunalega. Um það er þó
enginn efi. Þegar litið er aftan á »patínudúkinn«, sést að um4sm.
breiður »klappi« eða lokagengur niður á bakið að ofanverðu og er saum-
*) Sbr. Lúkasar gnðsp. 1. kap., 28.-38. v.
s) Spr. fyrirskipnn Sylvestus pafa: „Ex lino puro textum esse debet, et non ex
lerico vel purpnra, neque ex panuo tincto“.