Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Page 22

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Page 22
22 Það er ljóst af skýrslu þessari, að gjafirnar til safnsins hafa verið tiltölulega mjög margar fyrstu tvö árin, sem safnið var sýnt í nýju húsakynnunum, fram undir hundrað nr. auk myntanna frá Hilmar Finsen síðara árið. öll hin árin eru gjafirnar um helmingi færri árlega, en þó með líkri tölu og verið hafði lengst af áður síðan 1866. Tala keyptra gripa fyrstu tvö árin er svipuð nokkuð því sem verið hafði síðan 1876, en fjárupphæðin til gripa- kaupa hin sama, 400 kr. á ári; en undir eins og sú fjárupphæð er aukin, eykst tala hinna keyptu gripa, og einkum gætir þessa eðli- lega 1888 og síðan, er fjárhæð þessi var orðin 1000 kr., en auðvitað fer tala keyptra gripa á ári hverju mikið eftir því, hversu mikið er keypt af verðháum gripum það og það árið; 1891 eru t. d. keyptir miklu færri gripir en næstu 3 ár á undan, og kom það af því, að það ár var einn gripur borgaður með 300 kr. og 2 aðrir með 45 kr. hvor, en um 200 kr. voru eftir við árslok geymdar til næsta árs, til þess að borga þá helming verðs eins hlutar, er þá var keyptur fyrir 400 kr. Þessi 5 síðustu ár (1888—92) voru keyptir helmingi fleiri gripir (564) heldur en keyptir höfðu verið á öllu fyrsta tímabilinu, nítján árum (1863—81). Helztu gripirnir, er safninu bættust á þess- um 11 árum, 1882—92, voru þeir er nú skulu greindir; skulu hvers árs helztu gjafir taldar fyrst og gefendanna getið svo sem gjört var hér að framan: 1882. Frú Ingibjörg Magnússen á Skarði og frú Herdís Bene- diktsen í Reykjavík: Minningartafla Magnúsar Jónssonar prúða, með mynd hans, konu hans og barna þeirra, hökull og róðukross (nr. 2060-62). Frá Haga-kirkju. HoltskirTeja í Önundarfirði: Agætar útskornar myndir af Mariu með Jesú og önnu1), róðukross og skírnarfontur o. fl. (nr. 2069—72). Bjarni Kristjánsson bóndi á Núpi í Dýrafirði: Hurðarlamir stórar úr járni með miklu smíði (nr. 2077). Otrardals-kirkja: Þrjú útskorin líkneski og hurðarhringur (nr. 2090—93). Benedikt prestur Þórðarson í Selárdal: Paxspjald úr tré og lik- neski útskorið (nr. 2104 og 2107). Halldór Daníelsson á Fróðastöðum, siðar alþingismaður: Út- skorin líkneski 6 úr altaristöflu í Síðumúlakirkju, o. fl. (nr. 2134 —2145). ,Af gripum keyptum þetta ár má nefna: Silfurbelti (nr. 2116) og silfurfesti með nisti (nr. 2122). *) Sjá Arb. 1895, bls. 33—34, m. mynd.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.