Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Page 86
90
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
RÚMFJALIR
1. 0. m. (158/97. D. 2015.) Rúmfjöl úr furu. L. 89.8. Br. 18.5.
Þ. 1.5.
2. Fáeinar sprungur, og smáflísar hafa dottið úr. Brúnbæsuð
á framhlið. 62. mynd.
3. Á bakhliðina er rist anno og ártal, en á framhlið höfðaleturs-
áletrun og jurtaskrautverk. í miðju er afmarkaður ferningslaga
reitur. Er í honum sléttur hringferill, liðlega 1 sm á br., en inni í
hringnum ihs-merkið, gert úr skrýtilega sveigðum stöfum, sem mynd-
ast af smástönglum með undninga og blöð. Mjög djúpt er skorið
milli bókstafanna, eða allt að 1 sm. Dálítil pálmetta er í hverju
62. mijnd.
horni utan við hringinn. Hinir reitirnir tveir hafa höfðaleturslínu
meðfram efri brún og aðra meðfram hinni neðri, en milli þeirra
er vafteinungur, sem helzt gæti talizt rómanskur að gerð. Hefst hann
við ferninginn í miðju. Tilhögunin e.r ekki samhverf. í hverri tein-
ungsbylgju er grein, sem vindur upp á sig og endar á stóru blaði
með fleiri flipum. Blaðflipar eru einnig meðfram stönglinum. Hann
er 5—7 sm á br. Stöngullinn í vinstri reit hefur innri útlínur. Nokkr-
ar smáskorur eru í blaðflipana og á sumum greinunum liggur haft
þvert yfir blaðfótinn. Skurðurinn milli stönglanna gengur alldjúpt,
einkum í hægri riíitnum. — Þokkalega unnið.
4. Á bakhlið: ÁNO 1678.
5. Höfðaleturslínurnar: Þer|firer|lat|þu|o
ss|alldrei|neitt
I|þier|drttin
er|oll|uor|uon
(Auk þess ihs-merkið, sem nefnt var hér að framan.)