Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 56
60
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
fram vi'ð fremri endana. Til þess að spara rúm er sleppt á myndinni
42 sm aftan af öllum alinmálunum.
Þess ber að geta, að sumir kvarðarnir eru styttri en ein alin. Sumir
hafa aldrei verið lengri en y2 alin (eitt fet), en á aðra kvar'ða vantar
búta. í báðum þeim tilvikum er reiknað út frá því, sem heilt er, hve
löng sú alin væri sem þeir eru hlutar af og sú útreiknaða alin teiknuð
á myndina athugasemdalaust.
Svo sem myndin sýnir skiptast alinmálin í flokka og þó að aðeins
tveir séu skýrt greindir frá hinum, þ. e. dönsku álnirnar og hin ís-
lenzka alin Finns á Kjörseyri, þá kýs ég að skipta þeim eftir lengd
í 5 flokka. I fyrsta flokki eru danskar álnir. I honum eru 38 alinmál,
62,0 sm — 63,2 sm að lengd. í 2. flokki eru 6 alinmál æði mislöng,
eða frá 58,2 sm — 59,7 sm. Þennan flokk mætti kenna við Halldór
Árnason lyfjasvein, sem átti lengsta kvarðann, Þjms. 5635 og nefna
Halldórsálnir. í 3. flokki eru Hamborgarálnir, þrjú alinmál, 57,00
sm — 57,35 sm að lengd. í 4. flokki eru tvö alinmál, 54,2 sm og 55,9
sm löng. Þann flokk vil ég kenna við Jón biskup Árnason. Loks er
hin íslenzka alin Finns Jónssonar á Kjörseyri ein í 5. flokki aðeins
47,1 sm að lengd.
Áður en lengra er haldi'ð ber að lýsa mælingaraðferð minni. Hin
lengri mál eru fengin með því að leggja á kvarðann stálmálband
og mæla nokkrum sinnum. Með þessu móti virðist mælingarnákvæmn-
in nálgast * 0,5 mm, eða á allri lengdinni getur munað i/2 millimetra
til eða frá. Minni einingar, kvartil og þaðan af minna eru mældar
með sirkli og mælikvarða og mun mælingarnákvæmnin þá verða
allt að ± 0,3 mm.
1. flolcJcur, Danskar álnir.
Rétt dönsk alin var 62,77 sm. Sé nú litið á löggilta kvarða með
dönskum alinmálum, kemur í ljós, að eitt þeirra, Þjms. Ásbúð I er að-
eins 62,70 sm langt og því áðeins í styttra lagi, en hin eru 62,75
sm — 62,80 sm löng. Af ólöggiltum alinmálum eru fjögur 62,70 sm
löng, eitt 62,72 sm langt, eitt 62,75 sm og þrjú 62,80 sm löng, eða
samtals 9 alinmál, sem teljast mega alveg rétt. Öllum hinum dönsku
alinmálunum má skipta í tvo flokka, of löng og of stutt og reynast þá
16 of stutt, en 13 of löng. Stytzta alinmálið er 0,77 sm of stutt, en það
lengsta 0,43 sm of langt og er þá mesti lengdarmunur hinna dönsku
alinmála 1,2 sm og meðallengd danskra álna á þessum kvörðum 62,73
sm, eða aðeins neðan við rétta lengd svo sem búast mátti við.
Þessi dönsku alinmál eru svo mörg, að ég hygg að þau gefi góða
hugmynd um þá kvarða, sem verið hafa í notkun á síðari hluta 19.