Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1987, Síða 79
ÞORKELL GRÍMSSON, GUÐMUNDUR ÓLAFSSON
FORNAR LEIÐSLUR
í REYKHOLTI í BORGARFIRÐI
Inngangur
Eftirfarandi grein segir frá rannsóknum sem gerðar voru að Reykholti
1964 og 1984, á fornum gufu- og vatnsleiðslum eða stokkum. Leiðslur
þessar voru þrjár talsins og lágu til vesturs frá hvernum Skriflu. Tvær
þeirra voru vatnsleiðslur sem lágu að Snorralaug, en sú þriðja stefndi
upp á bæjarhólinn og reyndist hafa verið fyrir gufu. Þessi gufuleiðsla er
alveg einstæð í mannvirkjagerð hér á landi, og er fjallað um hana sér-
staklega, getum leitt að því í hvaða tilgangi hún hefur verið lögð í upp-
hafi og hvenær það hafi að líkindum gerst.
Rannsóknirnar fólust m.a. í því að grafnir voru könnunarskurðir,
tekin snið í gegnum leiðslurnar og þær grafnar upp að hluta. Að sjálf-
sögðu voru snið og allar hleðslur mæld upp, mynduð og teiknuð.
Hverjum könnunarskurði var gefið bókstafsheiti A—G, og hverri
leiðslu var gefið númer 1—3. Rétt er að geta þess til glöggvunar, að
skurður G sem er holræsisskurður, grafinn 1984, og F sem er könnun-
arskurður, grafinn að enda gufuleiðslunnar 1964, skarast að hluta.
Rannsókn Þorkels Grímssonar 1964
Haustið 1964 urðu þau tíðindi, að uppi í Reykholti í Borgarfirði
fundust tveir fornir neðanjarðarstokkar, allfrumstæðir að gerð, og hafa
verið notaðir til að veita í vatni og gufu. Var verið að grafa skurð undir
skolpleiðslu frá nýbyggðum kennarabústað Reykholtsskóla. Bústað
þessum hafði verið valinn staður norðan brekkunnar austan við bæjar-
hólinn (teikning I). Hinn 17. september, en þá náði skurður þessi
næstum niður að brekkurótum, kom í ljós hellulögn þversum í botni,
og rás sást þar grafin undir. Var rásin um fet á dýpt, með lóðréttum
hliðum og botn flatur. Gufa steig þarna upp. Hinn stokkurinn fannst
við könnun nokkru ofar í skurðinum, og lá hann einnig þversum. Var
hann ekki alveg ósvipaðrar gerðar, en rásin hér miklu minni, gufa var
í. Báðir hafa stokkar þessir verið lagðir vestur og suður frá hvernum
Skriflu. Á svæðinu var mýri, einnig kálgarðar og tún, og vegur lá hér