Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1987, Síða 111
HELGUHÓLL Á GRUND í EYJAFIRÐI
131
Spjaldhagi, og er skammt fyrir sunnan túnið. Einnig er getið aftöku-
staða í tengslum við þingið.14
Ekki er ólíklegt að Helguhóll hafi tengzt þinghaldinu á einhvern hátt,
á fyrstu öldum byggðarinnar. Eins og fyrr var getið er hvammurinn
sunnan undir hólnum tilvalinn samkomustaður, þar sent bæði er skjól-
gott og fögur útsýn.
Ef einhver fótur er fyrir þeirri tilgátu, að Helga- og Helguhólar séu
fornir helgistaðir, er líklegt að sama gildi um ýmis önnur Helga- og
Helgu-örnefni, svo sem Helgastaði, Helgafell o.s.frv.
Alþekkt dæmi um slíkan helgistað er Helgafell á Þórsnesi við Stykk-
ishólm, sem var helgað Þór þegar við landnám, af Þórólfi Mostrar-
skegg.
Hann hafði svo mikinn átrúnað á fjall það, er stóð á nesinu, er hann
kallaði Helgafell, að þangað skyldi engi maður óþveginn líta, og þar
var svo mikil friðhelgi, að öngu skyldi granda í fjallinu, hvorki fé né
mönnum, nema sjálft gengi á braut. Það var trúa þeirra Þórólfs
frænda, að þeir dæi allir í fjallið. Þar á nesinu sem Þór kom á land,
hafði Þórólfur dóma alla, og þar var sett héraðsþing með ráði allra
sveitarmanna.15
Svo segir í Landnámu. Síðar var sett fjórðungsþing þarna skammt
frá, eitt hið fyrsta í landinu. Hér fer ekkert á milli mála, enda hcfur aldrei
komið til álita að kenna Helgafell þetta við einhvern Helga, og sama
gildir um bæinn og kirkjustaðinn sem þar stendur undir.
Athyglisverð eru ummæli Landnámu og Eyrbyggju, um að Þórólfur
og hans frændur hafi trúað að þeir „dæju í fjallið", þ.e. settust þar að
eftir dauða sinn.16
Fer þá ekki að verða svo langt yfir í frásögn þjóðsagnanna um
Grundar-Helgu, sem gerði sér sal í hólnum og var sett þar í stól, við
dauða sinn. Er ekki líklegra að Helga á Grund hafi haft veður af þessari
fornu trú, að menn gætu dáið inn í fjöll, og viðhaft einhver slík ummæli
eða látið í ljós ósk þess efnis, hcldur en að hún sé þar jörðuð?
Eða var það ef til vill sjálfur landnámsmaðurinn, Helgi niagri, sem dó
í þennan hól og gerði hann að helgistað? Þessum spurningum verður
14. Lýsing Eyjafjarðar o.fl.
15. Landnámabók, bls. 125.
16. Sbr. sýn sauðamannsins í Eyrbyggju, er sá fjallið opnast og sá þar elda inni og heyrði
þaðan glaum og „hornaskvol."