Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Page 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Page 14
18 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS að þær voru „stórar, endarnir bognir og sveigðir upp og stál- eða látúns- skíði undir;"1"’ voru þær nefndar „strengjaskyttur." '7 Skyttur voru einnig stundum „látúnsslegnar á endum."'1' Um þær segir ennfremur í einni heimild: „I augað, sem þráðurinn lék um, var stundum settur snúður af glasi, hann felldur vel inn í og festur með lakki svo þráðurinn léki sem létt- ast."119 Algeng afköst við handskyttuvefnað hér á landi voru að sögn um tíu til tólf álnir á dag,'en af „fínum vef gat þetta orðið helmingi minna," þó svo að til hafi verið þeir sem skiluðu „16 álna voð yfir daginn," og „allt að 20 álnum suma daga," þegar keppst var við. " Einstaka handskyttuvefarar gátu jafnvel náð enn meiri afköstum; er nefnt að einn sem afkastamestur þótti í sinni sveit hafi ofið 24-26 álnir á dag,' ' og á annar í eitt skipti að hafa náð 30 álnum eftir daginn. "4 Hraðskyttiwefstólar Seint á 19. öld barst hraðskyttuvefnaður til landsins, og með honum komu hér upp vefstólar með allt að sextán sköftumÁ4 Hraðskyttan var fundin upp 1733 af enskum manni, John Kay, en náði ekki almennri út- breiðslu í Evrópu fyrr en á sjötta áratug aldarinnar og mun til dæmis fyrst hafa verið tekin í notkun á handvefstóli í Bandaríkjunum 1788.' Talið er að Gunnar, sonur Olafs alþingismanns Sigurðssonar í Asi í Hegranesi, hafi fyrstur Islendinga lært hraðskyttuvefnað. Dvaldist hann við nám í Dan- mörku veturinn 1879-1880 og flutti að því loknu heim með sér hraðskyttu- vefstól eða ef til vill öllu heldur uppdrátt af hraðskyttuvefstóli, sem smíð- að var eftir í Ási; ennfremur kom hann með lóskurðarvél og dúkapressu.1'' Þegar á öðrum vetri eftir heimkomuna hóf Gunnar að kenna piltum hraðskyttuvefnað í Ási, og gengu þar þá tveir stólar eða stundum þrír, „tveir í aðalgestastofu og einn í stúlknastofu."1'" Er sagt að mörgum hafi þótt „undrum sæta hraðvirkni vefarans og fjölbreytni vefnaðarins" úr þess- um vefstólum.' I erlendri heimild segir að afköst vefara hafi getað allt að ferfaldast með notkun hraðskyttu,™ en met í hraðskyttuvefnaði hér á landi mun hafa verið 40 álnir á dag.' Þess má geta að auk hraðskyttuvefnaðar barst einnig með Gunnari Ólafssyni sú nýjung að nota tvist, tvinnaðan bómullarþráð, í uppistöðu, og ýmist tvist eða ullarband í fyrirvaf,1' og jókst við það mjög fjölbreytni í vefnaði.137 Náði einkum bómullarvefnaðurinn vinsældum, en síður vað- málsvefnaður þar sem við hraðskyttuvefnað var ekki hægt að gefa í eða gefa upp í sem kallað var."4 Hraðskyttuvefnaður, sem og smíði hraðskyttu- vefstóla, breiddist út frá Ásheimilinu, aðallega norðanlands, og var vefn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.