Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Qupperneq 44
48
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Ekkert verður sagt með vissu um uppruna líkansins, en líklegt verður
að telja að það sé íslensk smíð. Um aldur þess verður ekki heldur sagt
annað en að það er eldra en frá því um aldamótin 1900, þótt álíta megi að
það hafi verið talið gamalt þegar Ward eignaðist það. Líkanið er með há-
um, og jafnháum, fram- og afturstuðlum, en það þekkist ekki af gömlum
íslenskum vefstólum öðrum en hraðskyttuvefstólum. Hins vegar er líkan-
ið með slöngurif ofarlega eins og á þeim vefstólum íslenskum sem taldir
eru vera af eldri gerð, samanber til dæmis vefstólana á 4. og 5. mynd hér
að framan. Spennislá hefur verið undir slöngurifnum og aftan við hann; er
upprunalega sláin glötuð, en höldur hennar sitja eftir aftan á afturstuðlun-
um. Einnig vantar þverslá ofan af slagborði. Óljóst er hvernig skeiðarhalds-
armarnir hafa verið festir við þverslána, en líklegast er, þar sem þeir eru
oddhvassir efst, að efri endar þeirra hafi gengið upp í göt á henni.
Öll gerð líkansins, þótt frumstæð sé, gæti bent til að líkt hafi verið eftir
handverksvefstóli. Einkum virðist það líkt vefstólum þeim þýskum sem
þegar er frá greint, líkaninu frá 1798 og myndum frá 19. öld og upphafi 20.
aldar.5
24.8.1994
Tilvitnanir og athugasemdir við viðauka
1. Þorkell Grímsson, "Ásbúðarsafn," í Árni Björnsson, ritstj., Gersemar og parfaþing. Úr 130
ára sögu Þjóðminjasafns íslands (Reykjavík, 1994), bls. 186-187.
2. Höfundur þakkar Halldóru Ásgeirsdóttur forverði fyrir þessa ábendingu.
3. Kristján Eldjárn (1962), 86. kafli ("Vordssafn").
4. Friðrik Ásmundsson Brekkan, "Wards-safn 7. marz 1950." Skrá í Þjóðminjasafni íslands.
Bls. 3-4 og 138.
5. Sjá heimildir í 99. og 100. tilvísun hér að framan.
SUMMARY
The present paper deals with the introduction of the horizontal loom (treadle loom) into
Iceland in the 18th century and various matters conceming such looms and weavers during
the 18th as well as the 19th century, together with a short comment on fly shuttle looms.
The first horizontal loom is said to have been brought to Iceland by the lawman Lárus
Gottrup (Figure 1) at the farm Þingeyrar in western Iceland, about 1711-1712. In 1722 or there
about a loom and a foreign weaver arrived at Skálholt in southern Iceland at the instigation
of the residing bishop, Jón Árnason. In all, only four or five horizontal looms seem to have
been reported in use in the country until the middle of the century. In 1751, a private
woollen mill, with three "narrow" looms was established at the home of the lawman Magnús
Gíslason at the farm Leirá (Figure 2) in southwestern Iceland. Three years iater it
merged with the state financed woollen mill in Reykjavík, founded there in 1752 mainly at
the instigation of the treasurer, Skúli Magnússon, and operated for about half a century (cf.
main text with notes 4-27). During parts of the second half of the 18th century, private
woollen mills are known to have been operated at farms belonging to three prominent indi-