Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Page 61
YNGRI VÍKINGAALDARSTÍLAR Á ÍSLANDI
65
hurð og tvær þiljur, og er þetta fernt fellt
inn í norðurvegginn á skipi þeirrar kirkju
sem nú stendur.'7 Þessar leifar stafkirkju frá
ofanverðri 11. öld eru alls staðar prýddar
dýraskreyti, það er bæði lágt (gaflar og
hurð) og hátt upphleypt, alveg upp í 12 cm
djúpt (dyraumbúnaðurinn, þiljurnar tvær
og hornstólpinn).
Úrnesstíll er orðinn til beint úr Hringa-
ríkisstíl, sem var mjög nákominn Mamm-
enstíl fyrirrennara sínum, að hluta samtíma.
Við upphaf Úrnesstíls varð mikil breyting
bæði í stíl og fjölda myndefna, þau eru færri
en áður en öll runnin frá hinum fyrri stíl-
um. Oft er sagt að í Úrnesstíl séu aðeins not-
aðar þrjár dýramyndir, en það er ekki alveg
svo einfalt, atriði sem notuð voru í Mamm-
en og Hringaríkisstíl voru enn í notkun, eink-
um kross, sem kemur margsinnis fyrir oft
ásamt dýramyndum. Aðalmyndefnin eru þrjú: stórt ferfætt dýr sem kallast
myndstef 1 í Úrnesstíl, dýr sem líkist slöngu og endar hali þess ýmist í
fæti, uppvafningi eða skiptist í flipa, er þetta dýr kallað myndstef 2 í Úrnes-
stíl, í þriðja lagi mjög mjótt dýr, eins og þvengur og kallast myndstef 3 í
Úrnesstíl. Þó að stíllinn sé nefndur eftir norskum tréskurði þýðir það ekki
að hann sé sérstaklega norskur, þvert á móti var hann jafn samnorrænn og
stílar þeir sem á undan fóru. Alþekktar eru frá Skandinavíu og Islandi en
einkum frá Danmörku og Skáni gegnskornar nælur með dýramyndum,
svonefndar Úrnesnælur. Vísar nafnið til þess að oftast bera dýrin einkenni
Úrnesstíls. Úrnesnælurnar eiga mjög mikið sameiginlegt, en þó eru þær
ekki allar eins. Þekktasti fulltrúi þeirra er ákaflega glæsileg næla í hreinum
Úrnesstíl,' sem fannst í Lindholm Höje í holu með þýskum peningi frá
1039-1046." Á íslandi hafa fundist tvær Úrnesnælur, önnur í Skáney og
hin í Tröllaskógi. Erfitt er að segja til um fjölda Úrnesnæla alls, því alltaf
eru þær að finnast. Árið 1968 birtist yfirlit um Úrnesnælur á Norðurlönd-
um þar sem þær eru sagðar 8 í Danmörku og 13 í Svíþjóð, að viðbættum 4
þar sem dýrið er með vængi. í Noregi voru þær 9 og á íslandi 2.'1 Árið
1983 voru Úrnesnælur taldar um 25 í Danmörku og Slésvík, yfir 20 í Sví-
þjóð, 11 í Noregi og 2 á íslandi.7” Nú er vitað um margfalt fleiri Úrnes-
nælur á Norðurlöndum, og höfundur þessarar greinar vinnur að yfirliti
um þær. Af íslensku nælunum tveimur er sú frá Tröllaskógi á Rangárvöll-
Mynd 5. Úrnesnælan frá Trölla-
skógi. Framhlið (safnnr. Þjms
6524). Til að myndin verði skarpari
er hér sleppt tvöfaldri röð punkta
með niello sem liggur eftir hálsi
miðdýrsins, búk, framfæti og
fremri rófnflipa. Teikn. R. Beldini.