Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Page 79
UM ALDUR HILLEBRANDTSHÚSS Á BLÖNDUÓSI
83
ins árin 1992 og 1993 orðið þynnri en ella og haft meiri sannleika að
geyma.
í ljós kemur að Hillebrandtshús er byggt úr viðum eldra húss eða húsa
að mestu leyti. Yfirgnæfandi hluti húsgrindarinnar er tilhöggvinn viður
og því nokkuð gamall. Hluti grindarinnar er nýrri. Ekki er um að ræða að
húsið hafi verið flutt til Blönduóss og reist þar aftur í sömu mynd, heldur
er byggt úr efni eldra húss. Líklegt má telja að Hillebrandtshús sé jafnbreitt
húsinu sem það er byggt úr, og ef til vill er lengd þess svipuð. Glugga- og
dyraop eru með allt öðrum hætti. Timburklæðningar útveggja og þaks eru
úr sambærilegum klæðningum eldra húss og liggur nærri að ætla að það
kunni að vera úr sama húsi og grindarefnið. Klæðning upphaflega hússins
hefur verið lóðrétt borðaklæðning með mjórri listum yfir samskeytum.
Klæðningin var máluð með rauðri tjörumálningu. Þegar Hillebrandtshús
var klætt voru aðeins undirborðin notuð. Veggirnir voru þéttklæddir og
tjörupappi negldur yfir borðin að utan og pappinn síðan málaður í ljós-
gráum eða hvítum lit. Þakklæðning upphaflega hússins hefur að líkindum
verið úr tjörguðum borðum. A Hillebrandtshúsi voru sömu borð notuð á
annan hátt. Þau voru negld þétt saman á sperrurnar og þakið síðan klætt
tjörupappa. Gólfborð Hillebrandtshúss hafa líka sum gegnt öðru hlutverki í
eldra húsi. Sjá má að nokkur þeirra hafa verið tjörguð klæðning í fyrra lífi.
Sagan um flutning hússins frá Skagaströnd virðist af þessu geta verið
sönn í sjálfu sér. Hún hefur bara verið oftúlkuð og skilin á þann veg að
Skagastrandarhúsið hafi verið endurreist á Blönduósi. Sú er ekki raunin
eins og segir hér að framan heldur var Hillebrandtshús reist sem nýbygg-
ing úr viðum eldra húss og svolitlu bætt við af byggingarefni. Nú getur
menn auðvitað greint á um það hve mikil breyting má verða á húsi við að-
stæður eins og þessar áður en til þess kemur að um nýtt hús sé að ræða.
Þar getur verið erfitt að skera úr.
Umræðan um aldur Hillebrandtshúss hófst með rökstuddri tilgátu
Hrefnu um að Hillebrandtshús væri elsta hús landsins. Þeir sem vilja
halda sem fastast í þá túlkun skyldu hafa það í huga, að á Djúpavogi stend-
ur gamalt hús, Langabúð, sem byggt var um miðja seinustu öld uppúr
eldri húsum sem reist voru um miðja 18. öld en þau hús voru hins vegar
reist skömmu fyrir 1640. Núverandi hús stendur á sama grunni og upp-
haflegu húsin, er jafnbreitt og byggt að langmestu leyti úr sama efni. Þótt
Langabúð sé reist um 1850 þá nær saga hússins aftur til 1640. Líklegt má
telja að fleiri hús finnist hér á landi sem byggð séu úr viðum sér miklu
eldri húsa og séu lík þeim að stærð og lögun.
Um Hillebrandtshús verður sagt með vissu að það er reist árið 1877 úr
viðum miklu eldra húss, en frá því greina ýmsar heimildir.