Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Qupperneq 84
88
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Þar nnmu eftir
undrsamligar
gullnar töflur
í grasi finnask,
þærs í árdaga
áttar höfðu.
Haft er rákamunstur á stautnum, og útskurður, hringur með tveimur
krossum, er á teningnum. Annar þessara krossa, hinn stærri, gerður úr
bendli, er með sveigðum endum, og liggja þeir til hægri, þannig að fram
kemur þyrillaga hakakross. Hinn krossinn er einnig úr bendli, hann er í
miðju og liggur sem haft á stærra krossinum. Þetta skurðatriði í gininu,
haft hægra megin í stól, er á eðlilegum stað skjaldarmerkja eiginkvenna,
eins og komast má að raun um ef skoðaðar eru bækur um skjaldarmerkja-
fræði. A stólnum frá Grund í Þjóðminjasafni Islands, Rafnsstól, blasir við
mynd í kringlóttum reit á miðri neðri þverfjölinni í baki og gjörð höfð um-
hverfis. Sést hér maður á hestbaki með þríhyrndan skjöld í hægri hendi og
sverð í vinstri hendi, myndin snýr t.v. Kringum myndina liggja pálma-
greinar. Stuttar, laufgaðar greinar eru undir hestinum, sömu tegundar og
algeng er í skrauti stólanna. Beint liggur við að álykta að þarna sé gert
skjaldarmerki Rafns Brandssonar. Sú tilhögun að skjöldur sé borinn í
hægri hendi en vopn í hinni vinstri kemur nokkuð á óvart, þó tíðkaðist
hún í skjaldarmerkjum, og verða fundin gömul dæmi um þetta á Spáni,
Bretlandseyjum og víðar. Lag skjaldarins bendir til 13. aldar. Maðurinn
ber hjálm á höfði af óvenjulegri gerð, hann er flatur ofan, andlitshlíf er á
hjálminum og hún höfð uppi.
Kringskorin mynd hænsnfugls er efst á báðum framstólpum stólsins í
Þjóðminjasafni Islands. Myndin á vinstra stólpa mun sýna hana, hin hænu.
I Gylfaginningu nefnist Oðinn „hanaguð". í Völuspá er minnst á hanann
Gullinkamba, og segir í sömu vísunni:
en annarr gelr
fyr jörð neðan
sótrauðr hani
at sölum Heljar.
Sæti með kubb eða kistli að neðan er mjög gömul tegund húsgagna.
Hér skal látið nægja að geta þess að slík sæti voru notuð meðal Forn-
Egypta, og er t.d. alabastursmynd ein til marks um það. Konungshásætið í
Knossos á Krít, úr alabastri, ætlað vera frá 15. öld f.Kr., er kubblaga að
neðan, armalaust og með háu baki. Seinna er ljóst að einkum voru notaðir
þrenns konar stólar í Grikklandi, þronos, all þungbyggt sæti, klismos, all