Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Page 87

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Page 87
STÓLL ARA JÓNSSONAR 91 topplaga að gerð, og nær honum yfir herðar, föt hans eru nærskorin, hann klæddur síðum brókum, og er í lágum skóm. Maðurinn snýr að óvætt- inum, blæs í horn, sem hann heldur á í hægri hendi, en grípur vinstri hendi um laufgaðan trjásprota eða tré, sem rís aftan við hann og myndar stafinn s, tréð tengist útskurðinum sem t.h. er á fjölinni. Drekinn gapir, rekur út úr sér tunguna, og sjá má að hún snertir manninn. Þarna virðist mér litlum vafa undirorpið að tréskerinn hafi hagnýtt sér söguna alkunnu um Jónas í hvalnum. Skepnan sem gleypti Jónas spámann hefur verið sýnd öðru vísi í list en hvaiir eru útlits. Skepnan líkist dreka í tíglalögn frá 308-319 e.Kr. í Aquileia á Ítalíu. Hefur sú mynd birst í bók Martins Henig um list Rómverja. í annari fornri mynd, töflu skorinni í fílabein frá Mur- ano á Ítalíu, í eigu Ravenna-safns, er tré að baki Jónasi. David Talbot Rice birtir af henni mynd í riti sínu urn býsanska list. í Biblíunni er talað um risínusrunna í þessu sambandi. Eins og kunnugt er hefur sagan verið álit- in tákna upprisuna. Ormshnúturinn vinstra megin á fjöl myndar eins kon- ar hakakross, sbr. hinn víðkunna Þorvaldskross á eynni Mön, sem er tal- inn vera frá 10. öld. Annar hnútur með skyldu lagi kemur í ljós hægra megin á fjölinni, og enn annar á efra hluta vinstra framstólpa. Haka- krossinn er ævafornt tákn og þekkist víða um heim. Hér tengist hann gróðurríkinu á áberandi hátt. Elsta dæmi hans mun vera að finna í list fornsteinaldar í Rússlandi. Hann hefur verið talinn merkja sólina og eldinn, og þannig lífið, ennfremur er hann álitinn dauðatákn. A neðri þverfjöl, þar sem greint mun frá Jónasi spámanni, er ekki ólíklegt að krossinn merki sólina. Hið s-laga tré sem þarna rís kann að merkja rúnina þ.e. sól. Toppmyndaðar húfur og hettur tíðkuðust mjög áður fyrr. Gallar áttu skikkju sem nefndist bardocucullus, og var hún með áfastri hettu. Voru í slíkum yfirhöfnum börn, bændur, ferðamenn og lágstétta- fólk. Síðar tóku þær upp munkar, og getið er um fylgdarmenn sem hétu hettusveinar í norrænum lieimildum. Hin topplaga hetta miðalda var ein- kenni bænda, skólamanna, ferðalanga og kynjavera. Frá 10. til 12. aldar og um talsvert skeið upp frá því voru í tísku hettur með herðahlíf, sbr. mynd Jónasar spámanns. Telja sérfróðir menn að þær hafi þróast frá flíkinni bar- docucullus. Örsmá mynd, harla sérkennileg, byggð á samruna, er skorin út við mið- bik framhliðar á Grundarstól Þjóðminjasafnsins. Þarna verður greind mynd af manni, höfuðfati, dýri og gróðri. Úr verður all kímilegt skrípi, og snýr vera þessi fram vinstra vanga, á henni er trýni, lmýðislaga, og munn- urinn ákaflega víður. Hér kemur í ljós höfuðfat með stuttum strút, borði þversum á því. Atriði þetta leynist í blaðskrauti hægra megin skráar- gatsins, nálægt brún sessunnar. Því hefur ef til vill verið trúað, en sannað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.