Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Side 138

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Side 138
142 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Lögð var út lína samsíða flakinu til að mæla út frá og svæðinu skipt í reiti sem fengu nafn bæði samkvæmt hnitakerfi og stafrófsröð. Var upp- hafspunktur línunnar settur niður þar sem við ætluðum að væri vel fyrir utan endimörk skipsins í suður. Sá punktur fékk nafnið X50, Y50 eða A1. Öllum gripum var safnað saman úr einum fermetra (reit) og þeim gefið eitt númer fyrir hvern fermetra. Þeir voru ekki hæðarmældir. Þegar allir reitirnir höfðu verið hreinsaðir af þara, steinum, sandi og eðju með eða án ryksugu, voru þeir ljósmyndaðir með neðansjávarmynda- vél á sérhannaðri ljósmyndagrind sem náði yfir rétt rúman 1 fermetra. Vegna brenglunar ljóssins neðansjávar verða linsur í myndavélum að vera gleiðlinsur og var okkar vél með 20 mm linsu. Til að geta athafnað sig yfir flökunum varð að leigja pramma sem not- aður var sem einskonar bækistöð við köfunina. Þá þurfti bát m.a. til að flytja menn út í prammann og til annarra snúninga. Var til þess leigður Zodiak gúmbátur með utanborðsvél. Dæla var um borð í prammanum til að fylla á súrefniskúta kafaranna jafnóðum og þeir tæmdust. En slíkt er nauðsynlegt ef köfun á að ganga hratt og vel. Öllum öryggiskröfum við köfunina var fylgt eins nákvæmlega og unnt var. Sandur og annað fínna efni var ryksugað með sérsmíðuðu ryksugu- munnstykki. Frá munnstykkinu var ryksugubarkinn leiddur upp á pramm- ann, þar sem hann skilaði af sér efninu í sigti, sem lá ofan á fiskikeri. Því var allt efni sigtað og skoðað gaumgæfilega. Þegar fiskikerið var orðið fullt af sandi og eðju var mokað úr því í kassa og því kastað í strauminn. Loftpressa um borð í prammanum knúði ryksuguna. Samanlagður köfunartími við rannsóknina var 116 klukkustundir og 18 mínútur sem gerir 7 klst. og 45 mín. að meðaltali hvern köfunardag. Niðurstöður Meginniðurstaðan af rannsókninni er að staðfest hefur verið að skips- flak frá 17. öld liggur í Höfninni í Hafnarey við Flatey á Breiðafirði og virðist töluvert vera eftir af flakinu. Ekki tókst að komast fyrir lengd flaks- ins, en miðað við útlínur þess (sjá teikn. 5) er það vart styttra en 25 m. Yngra flak liggur þvert ofan á því eldra og bendir allt til þess að eldra flak- ið nái út fyrir það báðum megin (sjá t.d. teikn. 4). Samkvæmt annálum, voru 60.000 blautir fiskar um borð í skipinu og eitt- hvað af kjöti þegar það sökk. Ef reynt er að áætla burðargetu skipsins og reiknað með að fiskurinn hafi verið þorskur gæti dæmið litið þannig út:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.