Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 19

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 19
67 ingin, þegar hugurinn heldur henni fastri sem sinni minningu, sem sannarlegu innra ástandi, er sálin hefir verið í. Hversu mjög hlýtur hún þá að styrkjast í hinu komanda lífi, þar sem allt stefnir inn á við til eigin fullkomnunar! jþá munum vjer skoða í eilífðarinnar ljósi sorg og gleði, og hvað annað, sem hjer hefir fram við oss kom- ið, og hvað eina, sem vjer höfum aðhafzt, bæði smátt og stórt. „Nú skilur þú ekki það sem jeg gjöri — sagði Jesús við Pjetur •—, en seinna munt þú skilja það“. Við þetta huggaði Balle biskup sig, er hann átti í sinni hörðu baráttu: „Hvert gildi verk mín hafa, — sagði hann — það fæ jeg einhvern tíma að vita“. En svo getur til borið, að það verk, sem bezt sýnist, ber alls engan ávöxt sjálfum oss eða öðrum, en aptur ber það verk ávöxt, sem lítið eða ekkert sýnist í varið. Minningin, sem vjer höfum, getur verið Ijúf og á- nægjuleg, eins og minning barnæsku vorrar, en hún getur og verið þung og sár, minning um það, sem enginn þekkir nema Guð og vjer sjálfir: syndir vorar. Og þómuníöðru lífi — svo mikil er Guðs náð — minn- ingin um þær bera með sjer kærleikans fegurstu ímynd: kærleilca Guðs til sálarinnar og kærleika sálarinnar til Guðs. J>annig kom þetta fram þegar í þessu lífi hjá hinni bersyndugu konu, sem elskaði mikið, af því að henni var mikið fyrirgefið (Lúk. 7, 37 o. s. frv.). Og vegna þessa munu hinir fullsælu frammi fyrir hásætinu syngja nýjan lofsöng „honum, sem keypti oss Guði til handa af öllum kynlcvíslum, tungumálum, þjóðum og ættum með sínu blóði“; vegna þessa stíga bænir þeirra upp fyrir hásætið eins og reykelsis-ilmur (Jóh. Opinb. 5, 8 o. s. frv.). Og auk þess, að allt lif sjálfra vor verður oss í öðru lífi ljóst og skiljanlegt, sakirþess, að öll framför- in stefnir inn á við, þá er svo sem nýr heimur ljúkist 5*

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.