Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Blaðsíða 88
136
Síra Pjetur Ásmundsson var aðstoðarprestur hjá
síra f>orkeli eptir 1658.—Margir hafa haldið að síra
jporsteinn Björnsson hafi verið aðstoðarprestur hans, en
hann var vígður af Gísla biskupi Oddssyni til Utskála,
1638. Hann þótti fjölfróður og sjervitur; varð hann
líkþrár og blindur kararmaður. Meðan hann lágíkör,
lýsti Ástný nokkur Hallsteinsdóttir hann föður að barni
og var í því dæmt á prestastefnu 6. og 7.Desember
1659 af prófasti síra Einari Illugasyni og fógetaTómasi
Nikulássyni. Ljet síra þ>orsteinn flytja sig í rúmi sínu
á kviktrjám frá Útskálum upp að þingvöllum og setja
rúmið fyrir framan kórinn í þingvallakirkju; hann missti
embætti 1660. Flestir sneiddu sig hjá að eiga orðakast
við hann, og þegar hann átti að afhenda staðinn á Út-
skálum, var síra Jón Daðason í Arnarbæli fenginn til
að eiga við hann. Var rifinn gaflinn úr baðstofunni á
Útskálum og hann borinn þar út. Ljet hann klæða
sig og setja upp á gráan hest, semhannátti, og bauð
að teyma hann í kringum staðinn. En síra Jón ljet
teyma hestinn kringum útikofa, og á hann að hafa
brunnið litlu síðar, án þess að nokkur vissi líkur til.
Hann var fluttur á skipi frá Útskáluminn í Hafnarfjörð,
og er mælt, að eigi hafi linnt skruggum og eldingum
frá því hann var borinn á skip og þangað til hann var
borinn af skipi í Hafnarfirði. Llann bjó síðast 15 ár
með dóttur sinni á eignarjörð sinni Setbergi í Garða
sólcn og dó 1675. Hann setti sjer sjálfur grafletur og
ljet höggva á stein, og er það þannig látandi:
D. O. M. S.
Thorstænus jacet hic Björnonis filius ille, flos
patriæ antiqvæ, magnus in historia antiqva Patriæ.
Vixit annos Lxiii. Mortuus anno 1675. Requiescat in pace.
A B.