Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Blaðsíða 77
125
einhverjar liinar stærstu stjörnu-sjónpípur, sem gjörðar hafa verið. —
Sonur hans, Herschei yngri, var og merkur stjörnufræðingur.
Wapoleon (bls. 116) „hinn mikli“, Frakklandskeisari 1804—1814,
einhver af hinum mest framúrskarandi mönnum, sem lifað hafa; fædd.
á eynni Corsica 1769 j" i útlegð á eynni St. Helena 5. Mai 1821.
Origenes (bls. 109), sjá bls. 91 að framan.
Pasoal (bls. 110,115 Og 116), frægur frakkneskur fræðimaður og rithöf-
undur; skaraði einkum fram úr i reikningslist (mathematik) og eðlisfræði
(physik); samdi einnig ágæt rit i guðfræði; f. 1623 -j- 1662.
Davíð Friðrik Strausz (bls. 118), þýzkur prótestantiskur guðfræð-
ingur, f. 1808 f 1874, nafnkenndur fyrir rit sín á móti kirkjutrú og
kristindómi; i bók sinni „Jesú lif“, sem kom út 1835, rengdi hann al-
gjörlega áreiðanlegleik guðspjallamannanna.
MOEMÓNA-VILLAN Á VESTMANNAEYJUM.
Eptir síra Brynjólf Jónsson, sóknarprest í eyjunum.
|>að mun þykja vel til hlýða, að í Kirkjutíðindum
fyrir ísland sje með nokkrum orðum minnzt á þann
eina villutrúarflokk, sem gjört hefir vart við sig hjer
á landi, sem sje Mormóna, er kalla sig ,.hina hei-
lögu á síðustu dögumíl. f>að er alkunnugt hjer á landi,
að þeir einkum hafa hafzt við á Vestmannaeyjum, og
skal hjer með nokkrum orðum skýrt frá hinum fyrstu
upptökum þeirra hjer á landi, og svo frá þvi, er þeim
hefir áunnizt, að út breiða trú sína allt til þessa.
Maður er nefndur fórarinn Hafliðason, ættaður
undan Eyjafjöllum; fluttist hann til Vestmannaeyja inn-
an fermingar, og var fermdur af þá verandi presti á
Vestmannaeyjum síra Jóni Austmann árið 1841, með
þeim vitnisburði, eptir því sem tilgreint er í kirkjubók
Vestmannaeyja, að hann hefði „kunnað allsæmilega,
en skilið illa“. Liðuglega tvítugur mun hann hafasiglt
til Kaupmannahafnar, til að læra trjesmíði; kom hann
aptur til eyjanna árið 1849. Meðan hann dvaldi ytra,