Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Side 37

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Side 37
85 eygir í fjarlægð, gjörir koldimmuna umhverfis hann enn svartari. Meðal „andanna í varðhaldinu", sem hann er sam- an við, er enginn blíður friðarins engill, og engin lof- söngsrödd heyrist þar. Allir íjelagar hans eru van- sælir, eins og hann sjálfur, og búa hver yfir sinni leyni- legu hörmung. Og á þessum vansælunnar og kval- anna stað á ófriður, öfund og fjandskapur heima; glötunarfjelagar hans taka á móti honum með beisk- um skapraunarorðum, og hæðast að hans skammvinnu jarðarsælu, á líkan hátt og Esajas heyrði og sá þá í anda taka á móti Babels konungi (Esaj. 14, 9—12): „Undirheimur fer á kreik til móts við þig, þá þú kem- ur; hann heitir á vofurnar, á alla höfðingja jarðarinnar, og býður öllum konungum þjóðanna að standa upp af hásætum sínum. þ>eir taka allir til orða, og segja til þín : „"þú ert þá einnig orðinn máttvana einsogvjer; þú ert þá orðinn vorjafningi! Ofmetnaði þínum er nið- ur varpað í undirheima ásamt hljóminum þinna harpna! Ormarnir eru breiddir undir þig og maðkarnir ofan á þig! Hvernig ertu af himni ofan fallin, þú hin fagra morgunstjarna ? Hvernig ertu til jarðar niður hrunin, þú, sem varla virtir þjóðirnar viðlits?“. þ>ó væri hinum auðuga manni enn eigi öll von horfin, ef hann forhertist ekki enn meira, og' ofurseldi sig ekki enn freklegar myrkranna skelfilega valdi, heldur gæti grátið yfir sjálfum sjer og sinu illa notaða lífi; enn væri von, heföi hann aðeins eitt augnablik dirfzt að hlusta á hina kallandi röddu, sem heyrðist yfir hyl- dýpið, þegar drottinn stje niður! þ>ví þótt Abraham daufheyrðist við óskum vantrúarinnar, þá hefir drott- inn uppfyllt þær með óumræðilegri miskunn sinni, er hann boðaði náðarerindið í dauðra-ríkinu, og kom aptur með hjálpræðisins orð, lifandi frá hinum dauðu. Hversu fjölda margir munu þeir vera, sem hafíi

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.