Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 41

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 41
89 ans gullskreytta borg, liin nýja Jerúsalem, er svifin nið- ur frá himni. O, hversu sæl er sú borg, þar sem há- tíð er haldin að eilífu! hversu fullur fagnaðar er sá garður, þar sem enginn þekkir hryggð!“ (Suso). Ogí miðri borginni er Paradís: hið horfna er fundið aptur. f>ar sá Jóhannes í anda „straum lifsvatnsins, skæran sem krystall, og lífstrjeð, sem bar tólffaldan ávöxt, á sínum mánuði hvern, en blöð viðarins eru til lækningar þjóðunum“ (Opinb. 22, 1—2). J>ar munu „hinir eiliflega ungu, sem aldrei geta gamlir orðið“, vaxa í ljósinu frá einum krapti til ann- ars; allir eru þeir sælir, í eilífri hvíld, og þó í þeirri eilífu starfsemi, sem lifinu tilheyrir (2. Kor. 3. 18.— Irenæus). En eptir leyndardómsfullu ráði Guðs er þó mismunur á dýrðinni, „svo sem ein stjarna er skærari en önnur“, og sýnir þó sjerhver þeirra, eins og í spegli, einhverja hlið guðdómsljómans, hver eptir sínu ein- kennilega eðli. „1 húsi föður míns eru margir bústaðir“ — hefir Jesús sagt — og lærisveinar postulanna tala um þá, „sem búa í hinum nýja himni, og þá, sem búa í hinni nýju Paradís eða i hinni nýju Jerúsalem. Hver- vetna er þó Guð sýnilegur í þeirri mynd, sem þeim er gefið að líta“ (Irenæus). Spekin, sem „var hjá Guði frá eilífð, sem var yndi hans dag hvern, og ljek sjer ætíð fyrir augliti hans“ (Orðskv. 8. 22, 30), hefir endurnýjað allt; feg- urðarinnar Guð hefir gjört allt dýrðlegt; Guð náðar- innar og máttarins hefir leitt allt til sins takmarks. Vjer getum eigi hugsað oss neitt bjartara, tignarlegra, heilagra og yndis-fegurra, heldur en það, sem vitraðist Jóhannesi um fullkomnun allra hluta; það er eins og í þessum vitrunum bregði fyrir blíðum andvara og un- aðsælum hljómi, himneskri angan frá landi hinna lif- endu; þar skín ljómi af gulli og gimsteinum í óum- ræðilegri geisladýrð fyrir hásæti Guðs hins allsráðanda,

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.