Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 69

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 69
H7 sem að verklegu gagni koma, — hvernig er þess þá að vænta, að þeir geti skilið slíkar hugsanir sem þessar ? Ritningin leggur ekki heldur neina sjerlega áherzlu á þessar röksemdir ; hún tekur ekki svo mjög fram hyggju- vit mannsins, en kennir oss aptur á móti, að hið sanna gildi hans sje fólgið i liinum siðferðislegu hœfilegleik- um, i samvizkunni og í hjartanu. Og þannig hlýtur þetta að vera; því kristin trú snýr sjer ekki einungis til gáfumannanna, sem að tiltölu eru fáir, heldur snýr hún sjer til allra. Hversu fjarlægir sem mennirnir eru hver öðrum, þegar litið er til skynsemi og skarpleika, þá finna þeir sjálfir til þess, að þessi fjarlægð hverfur, þegar litið er til hins siðferðislega. Gagnvart skyldu- lögmálinu hverfur allur mismunur: auðugir og snauðir, lærðir og fáfróðir standa þar jafnt að vígi, og finna sömu ábyrgð á sjer hvíla. í þessu er og samkvæmt kenflingu ritningarinnar vor sanni mikilleiki fólginn. f>essi vesæla og auma skepna, sem nefnist maður, hefir til að bera undursamlegt vald; hann getur ákvarðað örlög sfn, hlýtt eða óhlýðnazt lögmáli tilveru sinnar, í stuttu máli: hann er frjáls, ogþetta erþað, sem gjörir lífhans alvarlegt og myrkt. Hugsum oss t.a. m. fátæklingana, íðjuleysingjana á strætum borgarinnar; oss virðast þeir sumir hverjir likir lifandi verkfærum eða dýrum, gædd- um dálítið frekara viti en hin dýrin; hjúpaðir tötrum, niður sokknir í lesti, hverfa þeir innan um Qöldann, og það er torvelt að hugsa sjer, að þeir hafi ódauðlega sálu, og að einnig þeim sje markaður staður í ráðsálykt- unum Guðs. En hugsum oss svo aptur, að vjer vær- um staddir í dómsalnum, og sæjum þar þessa menn leidda fram sem glæpamenn, sakaða um að hafafram- ið morð. Hvers vegna horfum vjer nú á þá með öðr- um tilfinningum? Hví stöldrum vjer við, til að hlýða á prófið, sem haldið er yfir þessum óláns-aumingjum ? Hví er rannsóknin svo nákyæm, jafnvel smásmugleg?

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.