Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 73

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 73
skapi farnir, geta kallað þetta draum ; en þeir, sem á- líta þetta hin æðstu sannindi, þeir, sem byggja á þessu alla trú sína og alla von sína, þeir staðfestast í þeirri vissu, að mannleg sál hafi óendanlega mikið gildi. Kross Krists hefir borið það ljós, sem ekki verður slökkt, yfir sorglega alvöru lífsins, yfir óttalegt vald hins illa og yfir óendanlegan kærleika Guðs. Hvað er hin hrein- asta meðvitund, hið ástúðarfyllsta hjarta í samjöfnuði við þessa æðstu fullkomnun? Menri segja, að það sje heimskulegt að hugsa sjer, að Guðs sonur hafi fram- kvæmt endurlausnarverkið á þeim hnetti, sem sje svo smár eins og jörð vor. Skyldi það þá vera auðveld- ara að trúa endurlausninni, hefði hún farið fram á ein- hverri af hinum stærstu stjörnum, á einhverri af þeim sólum, sem millíónir heima snúast í kring um? Mjer renna í hug orð spámannsins, er hann heilsar hinni litlu borg, er vera skyldi vagga frelsarans: „Og þú Betlehem Effrata, lítil til að vera meðal Júda þús- unda, frá þjer skal sá koma mjer til handa, er vera mun drottnari í ísrael“. Og þegar jeg hugsa um jörð vora, aðra vöggu Krists, verð jeg að segja: J>ú, jörð vor, ert aðeins svo sem fys í hinu óendanlega rúmi; en það ert þú, sem hefir sjeð kærleikans skærasta og fegursta ljóma; og það auga, sem hefir gagnskoðað hin mestu djúp heims- ins, hefir ekki sjeð neitt háleitara og dýrðlegra en þessa fórn á krossinum á Golgata. þegar allir líkam- ir og allir andar tilsamans eru ekki jafnvægi einnar einustu kærleika-tilfinningar, hvar í hinu endalausa rúmi og hvar í straumi tfmanna skyldu menn þá geta fundið nokkuð, sem meira sje en sá kærleiki, sem lýsti sjer á Golgata ? þetta skilur hver kristinn maður, jafnvel hinn fá- vísasti. Með hugsuninni gjörir hann sjer ekki grein fyrir þessum skilningi sínum, en hann lætur leiðast af

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.