Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Side 80

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Side 80
128 og siðan í húsum Sveins beykis fórðarsonar á Löndum, er líklega sökum mægða við gamla konu, er fyrir 16 árum var komin til Utah, hafði gjörzt Mormóni ásamt konu sinni. Yfir höfuð tóku 6 hjón Mormónatrú, i ekkja og i ekkill, bróðir Magnúsar Bjarnasonar, ásamt syni sínum (sem þó nokkru síðar fjell frá Mormóna- trú); ennfremur 2 persónur, Magnús nokkur Kristjáns- son og ekkjan þ>uríður Sigurðardóttir, er gefnar voru saman í hjónaband að Mormóna sið. En þess má geta, að þá er það varð uppvíst, að siðast nefndar persónur höfðu þannig verið saman gefnar, og að þær lifðu sam- an, eins og hver önnur löglega saman gefin hjón, sendi hlutaðeigandi prestur fyrirspurn um það til yfirboðara sinna, hvort þessi þeirra hjúskaparsambúð skyldi álit- ast lögum samkvæm, og var því svarað á þá leið, að þeim bæri að slíta sambúð sína, þar hún væri hneyksl- anleg, og leiddi þetta til þess, að ráðgjafinn fyrir ís- land lagði svo fyrir, að þau skyldu saman gefin af sýslu- manni, þar þau voru ófáanleg til að skilja1; en slcömmu síðar hurfu þau frá Mormónatrú, og lýstu hana hina örgustu villu. þ>ess skal ennfremur getið, að önnur Mormónahjón, Runólfur nokkur Runólfsson og Val- gerður Níelsdóttir, hurfu frá Mormónatrú, og óskuðu að vera viðurkennd sem meðlimir hinnar lútersku kirkju, en ekki var liðið nema svo sem missiri fyrr en hann aptur gjörðist Mormóni og ljet í öð'ru sinni skíra sig Mormóna skírn, eins og siður er hjá Mormónum, þrátt fyrir það, að hann sjálfur væri búinn að lýsa því yfir, að Mormónatrú væri hin argasta villa, og þrátt fyrir það, að prestur hans hefði margfaldlega sett honum fyrir sjónir þá miklu fásinnu, er hann gjörði sig sekan i, með því að hverfa aptur til Mormónatrúar. þ>annig ’) Sjá Stjórnartíðindi fyrir ísl. 1875, B. bls. IOO. — Útaf þessari ráð- stöfun spannst ritdeila all-löng í Isafold 2. árg. (1875) nr. 26 og 30, og i 3. árg. (1876) nr. 11 og 12.

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.