Óðinn - 01.01.1921, Page 2

Óðinn - 01.01.1921, Page 2
2 ÓÐINN Margrjet Yaldimarsdóttir. Hún var fædd á Litlahóli í Eyjafirði, 25. janúar 1880. Foreldrar hennar, Valdimar Hallgrímsson og Guðrún Þorbeigsdóttir, bjuggu þar allmörg ár, en fluttust þaðan til Akureyrar árið 1889, ásamt börnum sínum, Margrjeti og Hallgrími, sem enn lifir og býr á Akureyri með móður sinni. En Valdimar dó á Vifilstaða- hælinu árið 1916. Móðurætt Margrjetar sál. er úr Múlasýslum, greindar og dugnaðarfólk. En faðir Valdi- mars var Hallgrímur sonur Tómasar heitins á Steinsstöð- Margrjet Valdimarsdóttir. um og Rannveigar systur Jón- asar Hallgrímssonar. En móðir Valdimars var Margrjet dóltir sjera Einars Thorlacius og Mar- grjetar Jónsdóttur í Saurbæ í Eyjafirði. Margrjet sál. giftist 31. desember 1913 timbur- smið Jóni Porvaldssyni, sem þá var kennari á Hólum í Hjaltadal. Rúmu ári síðar fæddi hún dóttur og dó að fáum klukkustundum liðnum, 24. janúar 1915, þá rjettra 35 ára gömul. Margrjet heitin var óvenjulega vel gefin kona. Hún var í meðallagi há, þjettvaxin og fagurlimuð, andlitið var mjög frítt og gáfulegt, augun blá og skær, svipurinn hreinn og bjartur, hárið mikið og gulbjart. Hún hafði undurfagra söngrödd og kunni vel að beita henni, þó að hún nyti lítillar tilsagnar í söng. Glaðlynd var hún, og hin skemtilegasta í viðræðum. Hún var hinn mesti snillingur í hann- yrðum; lagði hún einkum stund á kjólasaum og þótti þar bera af flestum í fjölhæfni og list- fengi. En það sem lengst mun halda nafni hennar á lofti, er leiklistargáfan, sem henni var gefin, og allir dáðust að. Pað er engutn efa bundið, að hefði hún notið góðrar tilsagnar í þeirri íþrótt þá mundi hún hafa orðið fræg leikkona, gáfurnar voru svo miklar og fjölhæfar. Hún var 10 ára er hún ljek fyrsta blutverkið, í’orbjörgu hólmasól í leiknum »Helgi magri«. En alls Ijek hún 55 hlut- verk hjer á Akureyri og leysti þau öll vel af hendi og sum af sannri list. Enginn leikari hjer, hvorki karl nje kona, hefur notið slíkrar hylli sem hún. Enda var svo komið, að menn töldu hverjum leik borgið á leiksviðinu, er hún var einn af leikend- unum. Öllum var kunnugt, hversu mikil áhrif til bóta hún hafði á þá leikendur, sem með henni störfuðu, því að hún var óþreytandi í því að segja þeim til og benda á það, sem betur mátti fara a leiksviðinu, bæði hvað búning þeirra, framburð og látæði snerti. Árið 1911 gáfu nokkrir leikendur lijer á Akureyri Margrjetu sál. gullúr með festi í þakklætis og virðingarskyni fyrir leikstörf hennar. Og þegar hún dó, var af vinum hennar lijer stofnaður sjóður, sem ber nafn hennar og heitir »Minningarsjóður Margrjetar Valdimarsdóttur«. Er svo fyrirmælt í skipulagsskrá sjóðsins, að þegar hann hefur náð tiltekinni upphæð, skuli miklum hluta vaxta hans varið til eflingar leiklistinni a Akureyri. Páll J. Árdal. Gunnar J. Jacobson. Minninoarljóð. 1. Skín á gullið góða! Geisla rósin drekkur! — Ólgar mannlífsmóða, margur nökkvi sekkur. Falla fagrir hlynir, fauskar eftir standa. Kveðjast kærir vinir, kvíði skelfir anda. 2. Er af sorgum syrtir síðla lífs um ögur, brosin þín mjer birtir bernskuminning fögur. Og jeg ylinn þekki, ástina og blikið, harmar hrella ekki, heiðið er svo mikið. 3. Vinur, vinir þínir vaka enn og biðja, hærri heima sýnir hugarkraftinn styðja. Vilji vandast málin, verði sorgin bitur, árblik albeimssálin inn í myrkrið flytur. 4. Sólir lækna sviða. Sólir þerra tárir. Laugar Ijóssins iða leyndu hugarsárin. Ástin eyðir skugga, elska broti gleymir. Verndarvættir liugga. Vitska frjóir geymir. //. J.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.