Óðinn - 01.01.1921, Blaðsíða 89
ÓÐINN
8ð
6. Halldór Bernharður, fæddur 9. ágúst 1879.
Giftur bóndi á Vöðlum.
7. Einar, fæddur 28. okt. 1881, dó 21. júlí 1882
8 mánaða gamall.
26. desember 1920.
Sighv. Gr. Borgfirðingur
%
Sigvaldi St. Kaldalóns
læknir.
Sigvaldi læknir er þegar orðinn þjóðkunnur fyrir
tónlagasmiðar sínar, sem ílestir munu telja bæði
fallegar og einkennilegar. í Iögum hans má glögt
kenna svipbrigði sorgar og gleði, jafnt og ham-
skifti íslenskrar náttúru og hverfulleik í blíðu og
stríðu. — Mun hann með viðkvæmni sinni og
innileik hafa snortið hjörtu margra söngelskra. ís-
lendinga. Það var þó ekki ásetningur minn með
línum þessum, að kveða upp nokkurn dóm um
tónsmíðar hans. Það gera á sínum tíma mjer
færari menn — enda eru flest bestu verkin hans
heima í föðurgarði ennþá. En það eitt þykist jeg
þó mega fullyrða, að vögguljóð hans hverfi ekki
með honum í gröfina. — Viðkvæmnin mun sjer-
staklega einkenna lrann sem tónskáld, og við-
kvæmnin auðkennir hann sem lifandi mann og
starfandi.
Hvernig er hann þá sem læknir? Til að vinna
fje er hann óleikinn, en nákvæmur er hann og
samviskusamur við sjúklinga sína og leitun mun
á vinsælli roanni i hans stöðu. Hann er ekki
atkvæðamikill sem læknir, en hann vísar tafarlaust
til »kolIega« sinna eða sjer færari uppsprettu-
manna í því, er hann sjálfur má ekki við ráða.
Hann er strangur móti ónauðsynlegri notkun
áfengis og hefur ekkert áfengi eða áfengis-
resept látið af hendi hvorki til vina nje vanda-
manna. Hann er enginn bardagamaður og það er
fjærri honum að grafa í sorphauga eftir fjármun-
um. Sigvaldi er listelskur maður og ann öllu fögru
í hvaða mynd sem það kemur fram. — Hann er
mjög tilfinninganæmur og smekkvís, en það ein-
kennir hann sjerstaklega hvað hann er ósjergóður
og ber hag heildarinnar fyrir brjósti.
Nú er svo komið að Sigvaldi læknir hefur mist
heilsu sina og þá er mikið farið. Hann hefur nú
á undanförnum tíu árum þjónað i erfiðu hjeraði
og hefur að allra áliti, sem til þekkja, staðið
prýðilega í stöðu sinni. En sökum veiki þeirrar,
sem hann ber, neyðist hann til að láta af læknis-
verkum í hjeraði því, er hann hefur þjónað, og
mun ætlun hans að sigla til Danmerkur með konu
sína og börn og leita sjer heilsubótar. Hefur
Alþingi 1921 veitt honum 8000 kr. styrk, til eins
árs, fyrir settan lækni, er skal þjóna í fjarveru
hans. Eru hjeraðsbúar í Nauteyrarhjeraði og allir,
sem einhver kynni hafa af Sigvalda lækni, mjög
þakklátir Alþingi fyrir fjárveitingu þessa; því vinir
Sigvaldi St. Kaldalóns,
Sigvalda læknis biðja hann ekki einungis vel fara
og lengi lifa, eins og menn báðu fyrir Gretti Ás-
mundssyni, heldur biðja menn að hann megi
fljótan bata fá og aftur koma. —
Sigvaldi St. Kaldalóns er fæddur 13. jan. 1881,
í Reykjavík, sonur lijónanna Stefáns Egilssonar
múrara og Sesselju Sigvaldadóttur ljósmóður. Er
hann elstur af börnum þeirra hjóna, en Eggert
söngvari yngstur.
Sigvaldi giftist 16. sept. 1909, danskri hjúkrunar-
konu, Karen Margrelhe Tliomsen, fædd Mengel.
Hún er hin mesta myndarkona, og hefur sambúð
þeirra hjóna verið hin ástúðlegasta. |>au eiga
þrjú börn. —
Myndin, sem hjer fylgir, er tekin árið 1909,
um líkt leiti og hann tók við embætti.
J. M. Eggertsson.