Óðinn - 01.01.1921, Blaðsíða 75

Óðinn - 01.01.1921, Blaðsíða 75
ÓÐINN 75 hins gamla höfuðbóls. Heimili hennar var lengst- um eitt langstærsta heimilið í ísafjarðarsýslu, 6—7 húskarlar og ekki færri vinnukonur auk gustuka- manna, unglinga og tökubarna, sem jafnan voru fleiri og færri á heimili hennar. En öll heimilis- stjórn hennar meðan hún var á upprjettum fótum bar jafnan volt um skörungsskap hennar, dugnað og hyggindi. Þuríður hefur reynt það i orðsins eiginlegasta skilningi að vera bæði bóndinn og húsfreyjan á einu stærsta heimili landsins. Fyrri mann sinn misti hún 19. júní 1873 eftir aðeins 9 ára sam- búð, bjó hún eftir það sem ekkja þar til hún giftist Jakobi. En ekki stóð Ögurbúið með minni blóma þau ár en meðan fyrri maður hennar lifði og var hann þó lalinn dugandismaður. Frá því að seinni maður hennar dó og þar til fyrir nokkr- um árum, er hana þraut heilsu og krafta, stóð hún ein fyrir búinu, og þótt hún ekki gæti hald- ið áfram hinum miklu búnaðarframkvæmdum hans til lands og sjávar, sökum vaxandi verka- fólkseklu og annara óviðráðanlegra orsaka, veilti hún búinu forstöðu utanbæjar sem innan með sama skörungsskapnum og ráðdeildinni sem í fyrra ekkjudómi sínum. í þeim mikla fjölda karla og kvenna, sem verið hafa heimilismenn Furíðar alla hennar löngu bú- skaparlíð, hefur sjálfsagl oft verið misjafn sauður í mörgu fje, og því reynt mjög á lag og hyggindi húsfreyjunnar. En alt fór það henni vel úr hendi og mörg eru þau hjú hennar enn á lífi, sem að vísu þótti húsfreyjan í Ögri stundum nokkuð stór- lynd og umvöndunarsöm, en sem sáu það eftir á að . vandlæti hennar varð þeim til góðs og vist þeirra hjá henni þeim drjúgnr menningarauki, þeim til hags og þrifnaðar er þau siðarmeir áttu yfir öðrum að segja. Ögurheimilið var um hennar daga fyrirmyndarheimili að ráðdeild og þrifnaði og álti húsfreyjan vissulega sinn þátt í því. Fyrir- myndarheimilin islensku eru enn í dag hetri ujjp- eldisstofnanir fyrir ungu kynslóðina en sumir skólarnir okkar, þó minna sje þar um bókvitið. Allir heimilismenn Þuríðar fyr og síðar minnast hennar sem góðrar og ræktarsamrar húsmóður, og trygð hennar og velvild til margra þeirra hefur heldur ekki verið endaslepp. Hún er kona injög góðgerðasöm við fátæka menn, og þeir eru ótaldir fátæklingarnir í Ögursveit sem hún hefur rjett hjálparhönd, er þeim lá mest á. En þar hefur vinstri höndin varla mátt vita hvað hin hægri gerði; af svo miklu fordildarleysi hefur hún gert góðverk sín. Þuríður naut engrar mentunar í æsku fremur en bændadætur á þeim dögum. En hún hefur mentast í skóla lifsins og þær lexíurnar hefur hún líka lært vel. Hún er mjög vel greind að eðlisfari, bókhneigð og minnug og fróð um margt, en nú er minni hennar mjög tekið að hnigna. Fremur dul í skapi hefur hún verið og þur á manninn við fyrstu viðurkynningu, hefur hún best notið sín í fámenni meðal kunningja sinna og verið þá bæði ræðin og skemtin. Ekkert hefur verið henni fjar- lægara en að vilja berast mikið á i lífinu, en þrátt fyrir það hefur hún orðið mörgum kunn sakir mannkosla sinna og skörungsskapar. Að heimili hennar, sem er i þjóðbraut, hefur margan gest að garði borið og liafa allir þar hitt fyrir íslenska geslrisni, var hún þar samtaka báðum mönnum sínum. Ekki hefur Þuríður farið varhluta af hörmum lífsins. Saina árið sem hún misti fyrri manninn dóu tvö efnileg börn þeirra í desembermánuði, 7 og 8 ára, með fjögra daga millibili, og einkason sinn af seinna bjónabandi misli hún rúmlega tví- tugan árið 1905, góðan og efnilegan pilt. En Þuríður hefur borið þetta mótlæti ineð krislilegri hugprýði og frábærum kjarki. Iiún er kona trú- lækin og mjög kirkjurækin. Síðan hún misti lieils- una hefur henni verið það mikil raun, að geti ekki komist í guðs hús, og það hygg jeg að henni þyki nú ekki vænna um annað í eigu sinni en kirkjuna sina. Allmörg undanfarin ár hefur hún lilla sem enga fótavist haft sökum mátlleysis í fótunum, hefur það ágerst mjög nú upp á síðkastið, en sálar- kröltum sínum heldur hún enn furðulítið biluð- um eflir aldri. Mestan hluta æfi sinnar var hún heilsuhraust og slórmyndarleg kona sýnum. Dætur hennar veita búi hennar forslöðu. Börn hennar og Jakobs eru tvær dætur á lífi: Halldóra Þuríður, fædd 28. desbr. 1877, Ragnhild- ur, fædd 29. sept. 1880, og Árni, fæddur 14. sept. 1882, dáinn í Kaupmannahöfn 8. sept. 1905. Af fyrra hjónabandi á hún engin börn á lífi. Allir hinir mörgu vinir og kunningjar Þuríðar óska henni rólegs æfikvölds undir umönnun ást- ríkra dætra eftir mikið og velunnið dagsverk. Vigur, 6. mars 1920. Siyurður Stefánsson M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.