Óðinn - 01.01.1934, Page 3
ÓÐINN
3
Jón Stefánsson.
Eflir Dr. Stefán Einarsson.
l-
Laugardaginn 29. okt. síðastliðinn andaðist
hjer í Baltimore Islendingurinn Jón Stefánsson.
Tæpum tveim vikum áður hafði hann gengið
út í húsagarðinn, þar sem hann var að vinnu
sinni, og vissi þá eigi fyrri til en hann fjekk
höfuðhögg mikið, að honum virtist, svo að hann
fjell við og misti meðvitundina. Að litlum tíma
liðnum gengu menn fram á hann þarna og var
hann þá fluttur á næsta spitala (South Baltimore
General Hospital), þar sem hann lá eftir það.
Bráði að vísu af honum um tíma, svo að ekki
þótti örvænt um hann, en tveim dögum áður
en hann dó vernsaði honum aftur svo að auð-
sýnt var til hvers dró.
Jarðarförin fór fram frá heimili hans, 2012
West Lanvale Street, 2.' nóv., og fylgdu hon-
um til grafar,' auk fjölskyldu hans og íslenskra
vina, gamlir vopnabræður hans úr spanskame-
rikanska; striðinu (Members of General Henry
W. Lawton Camp, nr. 5, United Spanish War
Yesterans). Sáu þeir að miklu leyti um útför
hans og grófu hann að hermanna sið í kirkju-
garði ríkisins (Loudon Park National Cemetery).
II.
Jón Stefánsson var fæddur að Valþjófsstað í
Fljótsdal 27. apr. 1873, sama árið og faðir hans,
Stefán Pjetursson (1845—87), vígðist prestur til
Desjamýrar í Borgarfirði. En Stefán var sonur
sjera Pjeturs Jónssonar prests á Valþjófsstað og
viðar, sonar Jóns Porsteinssonar vefara (1771 —
1827), er manna kynsælastur hefur orðið á Aust-
urlandi, einkum Fijótsdalshjeraði, á seinni tim-
um (Vefaraætt). Anna f. kona sjera Pjeturs en
móðir sjera Stefáns var dóttir sjera Björns á Eið-
um Vigfússonar frá Garði, en í móðurkyn var
hún af Krossavíkurætt.
Móðir Jóns, en kona sjera Stefáns, var Ragn-
hildur Björg Metúsamelsdóttir frá Möðrudal
(1844—1923), ágæt kona og kvenna fríðust. Hún
var í föðurkyn af Möðrudals- og Bustarfellsætt,
en í móðurkyn af Kjarnaætt í Eyjafirði.
Þeim sjera Stefáni og Ragnhidi varð fjórtán
barna auðið, eins og ekki var með öllu ótítt á
dögum afa vorra og amma. Hitt var vist fátið-
ara, að þau mistu eigi nema tvö börn af þess-
um hóp í æsku, en hin tólf lifðu öll, mönnuð-
ust vel og lifa flest enn í fullum krafti, þótt nú
líði að úthalla æfi þeirra margra.
Jón var hinn þriðji í röðinni að aldri þeirra
systkina. Elst var Þórdís (1870), kona Davíðs
Sigurðssonar trjesmíðameistara á Akureyri, þá
Pjetur (1871 — 1910), síðast bóndi á Bót. Pá Jón,
þá Anna (1876), kona Þorvarðar Brynjólfssonar
prests á Stað í Súgandafirði, þá Björg (1876), er
fór til Ameriku og átti Jón Arngrímsson John-
son bónda í Minnesota, þá Halldór (1877) bóndi
í Hamborg í Fijótsdal og Torfastöðum í Vopna-
firði, nú um hríð þingmaður Norðmýlinga. Pá
Pórunn (1879) ógift, þá Björn (1880) um skeið
þingmaður Sunnmýlinga, þá Guðmundur (1881)
er fór til Ameriku, og varð skólamaður (ókvænt-
ur), þá Metúsalem (1882) búnaðarmálastjóri, um
skeið skólastjóri á Eiðum, þá Þorsteinn (1883),
kennari á Hvanneyri um skeið, hreppstjóri
að Pverhamri í Breiðdal, þá Jónína Aðalbjörg
(1886), kona Guðmundar Þorbjarnarsonar múr-
arameistara á Seyðisfirði.
Öll hafa þessi systkini verið meira en í með-
allagi að andlegri og líkamlegri atgervi, ljós
yfirlitum, heldur stórskorið andlit, en oft frítt,
hátt enni með sveip framan í hárinu. Hef-
ur komið fram hjá þeim meira og minna
sterk hneigð til höfðingsskapar og forgöngu:
bræðurnir hafa flestir verið atkvæðamiklir í
sveitar- verslunar- eða stjórnmálum.
III.
Eins og áður er sagt, fór Jón með foreldrum
sinum, drengur á fyrsta ári, að Desjamýri í
Borgarfirði. Þar ólst hann upp til 11 ára aldurs,
er faðir hans fjekk Hjaltastað í Útmannasveit
(1884). Síra Stefán varð eigi langlifur, hann dó
sumarið 1887, og næsta vor fluttist ekkjan bú-
ferlum að Geitagerði í Fljótsdal, með flest börn-
in, en sum voru tekin i fóstur af ættingjum og
vinum. Jón var með móður sinni þar til hann
fór til Ameriku sumarið 1893, með Guðmundi
bróður sinum, þá 12 ára dreng. Urðu þeir sam-
ferða sjera Matthiasi Jochumssyni, er þá var að
fara á sýninguna frægu í Chícago. Er ekki ólík-
Iegt að tvent hafi dregið þá bræður til farar
þessarar, fyrst og fremst þrengsli í búi heima
fyrir og þar næst áeggjanir frændfólks þeirra,
er þegar var sezt að í Ameríku. Voru það þau