Óðinn - 01.01.1934, Síða 24

Óðinn - 01.01.1934, Síða 24
24 ÓÐINN Hvammur á Landi. Gnúpverjahreppa, þegar svo ber undir og sæmi- lega er fært, og þá helst að sumarlagi, er út- lendir eða innlendir ferðalangar fara á hestum milli Heklu og Geysis eða Þjórsárdals. Enn fremur voru og áður 2 aðrir alkunnir fjölfarnir ferjustaðir sunnar yfir þessa stórá, Króksferja og Sandhólaferja. En nú eru allar aðal-ferðir Landmanna, sem annara sveita austan Þjórsár, um Þjórsárbrúna hjá I’jótanda, síðan hún kom, enda er nú og kominn þjóðvegur, yfirleitt góður, að henni og frá, yfir Holtin, og aftur af þeim þjóðvegi önnur þjóðleið upp og austur Holtin inn í og gegnum Landsveit alt að Múla undir Skarðsfjalli. Er sú leið kölluð »Fjallbaksvegur« af því, að henni er ætlað að ná alla leið austur í Skaftártungu, að baki fjalla, um afrjetti Land- manna og Skaftfellinga, þar sem og einatt áður hafa milliferðir orðið. En enn þá er þessi Fjalla- baksvegur i smíðum og einatt á ýmsum stöðum ýmist illfær eða ófær vögnum, auk heldur bíl- um, einkum þó í vætutíð á sumrum og vetrar- bleytum og snjóum. Svo að enn er þá þessi sveit — sem og ýmsar fleiri — meir eða minna einangruð tímum saman, þótt hátíðlegt sje hjá þvi, sem áður var. Þá er mannfólkið og saga þess í þessari sveit. Hjer vantar kunnáttu og gögn til að Iýsa fólki og sögu þessarar bygðar frá fornu fari, og meir en svo. Frá fornöld er það eitt vitanlegt, eða taíið víst, að sveitin sje upphaflega að nokkru numin af landnámsmönnum. Nefnir Landnáma þar til Snjallstein að Snjallsteinshöfða, Lunan að Lunansholti, Ketil einhenda að Á, sem nú er eyðijörð liggjandi undir Hvamm; Orm Auðga að Húsagarði, Brand að Völlum (líkl. Stóru- Völlum) og Ketif Örriða að Völlum hinum ytri (líkl. Minni-Völlum nú). En þótt fleiri land- námsmenn að bújörðum í hrepnum sjeu ekki í minnum hafðir, má vel ætla, að þeir hafi fleiri verið, og þá hið efra í sveitinni, þar sem verið hafa, og eru enn, engu ógirnilegri jarðir en hið syðra og ytra, svo sem Leirubakki, Galtalækur, og áður Stóri-KIofi og Mörk. En að öðru leyti er eðlilegast að hugsa sjer, að út frá slíkum frumbyggjum hafi svo fólkið kvíslast og dreifst um sveitina, og »reist sjer bygðir og bú« í land- námum feðra og forfeðra sinna, uns hún var alskipuð svo sem fært hefur þólt. En hversu sem þessu hefur verið háttað, þá er þó eitt einkennilegt og eftirtektarvert um þetta fólk fornaldar, að það virðist hafa verið yfirleitt kyr- látt eða ekki mikið útbrota- og umbrotafólk, heldur oftast nær nokkuð út af fyrir sig, og stórvítalaust innbyrðis. Því að fárra eða engra er getið þar fornaldar ribbalda eða sögulegra stórlaxa, sem vasast hafi i vígaferlum og mála- þvælum út á við, og ekki heldur innsveitis, svo að sögulegt þætti. Það væri þá einna helst Torfi í Klofa, Eysteinn í Mörk, sem sögur hafa farið af, og þó ekki um nein »endemi«, sem betur fer. Víst er þó, að hjer, eigi síður en annarstaðar, hafa á öllum öldum, síðan bygð hófst, lifað og starfað margir íleiri mætir og enda merkir menn, karlar og konur. Mætli þar til enn fremur nefna frá eldri tíð Pál Jónsson, Loftssonar, í Skarði, síðar Skálholtsbiskup, og ýmsa aðra á siðari tíð, þótt eigi sjeu gerðir sögufrægir. Um athafnir, afkomu og vegnan sveitarbúa hjer í fornöld og fram eftir öldum, eða fram á síðustu öld, er eigi heldur hjer að fá nokkra sögulega þekkingu nje örugga vissu. En vel má ætla, að löngum hafi fólki hjer liðið vel, bæði fyr og síðar. Má byggja þá ætlun á þvi, að þegar, eða svo lengi sem sveitin var óskemd, eða lítt skemd, af náttúrunnar og mannavöldum, þá hefur hún sýnilega verið ein hin mesta búsæld- arsveit að flestu leyti; enn fremur á því, hve fáar og smáar sögur fara af þessu fólki; því að sjálfsagt hefðu orðið og geymst einhverjar sögur af þvi, ef mikið hefði út af borið. Og loks má og nokkuð marka af því, sem lengi hefur verið sagt um margt fyrri tiðar fólk hjer, að það vildi mjög ógjarna hjeðan hverfa, og þráði helst fornar stöðvar, ef það barst á braut, enda er jafnvel enn

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.