Óðinn - 01.01.1934, Síða 37

Óðinn - 01.01.1934, Síða 37
ÓÐINN 37 Ðjörn Jakobsson og Guöný Kristleifsdóttir. Þau eru bæði ættuð og upp runnin úr Borgar- firði. Hann er fæddur að Varmalæk 5. júní 1894. Foreldrar hans eru hin alkunnu merkishjón, Jakob Jónsson, bóndi á Varmalæk (dáinn 1912) og Herdís Sigurðardóttir, kona hans, er enn býr þar rausnar- og myndarbúi. Björn stund aði áunglingsaldri nám í unglinga- skóla Ásgríms Magnússonar í Rvík og í Hvítár- bakkaskóla undir handleiðslu Sig- urðar skólastjóra Þórólfss. Annar- ar skólamentunar hefur hann ekki notið. En þegar Sigurður þórólfs- son seldi Hvítár- bakka og ýmsir áhugasamir Borg- firðingar keyptu jörðina til þess að reka þar búskap og skóla, þá varð Björn skólabúsráðsmaður, og kennari um allmörg ár. Fyrstu árin, sem hann var þar kennari, hafði sá, er þetta ritar, forstöðu skólans á hendi. Var því Björn samverkamaður minn þau árin. Á þeim árum las hann og lærði mjög mikið og varð þann veg fjölmentaður í besta lagi. Hann var lipur, duglegur og skýr kennari og mjög vinsæll meðal nemenda. Björn er listhneigður og listrænn. Ágætlega er hann söngfróður og mjög söngelskur. Leikur hann prýðilega á hljóðfæri ög hefur verið kirkju- organisti um langt skeið. Kom söngkunnátta hans honum að ágætu haldi meðan hann var kennari, þvi að söngkenslu hafði hann á hendi við skólann allan þann tíma. Iþróttamaður var hann og kendi leikfimi við skólann um allmörg ár. Komu þar kennarahæfileikar hans greini’ega fram, því að kensla hans var í þeirri grein, sem öðrum, smekkvís, nákvæm og ákveðin, enda þótt hann væri »ólærð- ur« leikfimi- og í- þróttakennari. Á síðari árum hefurBjörnstund- að landbúnað, eft- ir að hann Ijet af kenslustörfum. — Síðan hann gekk að eiga konu sína, hefur hann verið á Stóra-Kroppi og rekið þar búskap ásamt tengdaföð- ur sínurn. En hin listræna hneigð hans hefur ekki kafnað fyrir það. Á þeim árum hefur hann lagt mikla stund á skurðlist. Á því sviði hefur hann gert marga hlutí ágætlega, enda erhann hjer um hjerað við- urkendur fyrir skurðlist sína. Og skoðun min er sú, að smekkvísi hans og listræni hafi enn þá hvergi komið skýrar fram en í þeim hag- leik hans. Björn er vitur maður og drengur góður. Kona Björns, Guðný Kristleifsdóttir, er fædd Björn Jakobsson. Gnðný Kristleifsdótlir. að velja hann fyrir oddvita sinn; því að þótt Eyjólfur sje eðlilega tekinn að eldast eða hrörna að líkamanum til, þá er samt »andinn reiðu- búinn«, eða hinn sami; sami áhuginn og viljinn, sama umhyggjan og aðgæslan um hag sveitar og sveitunga, og sama natnin og nákvæmnin um allar fjárreiður og reikninga, sem fyrir er trúað. Og ekki er að efa, að nóg er nú orðin æfingin og kunnáttan í þessum efnum, og and- legir starfskraftar nógir enn. Skal svo sögu og máli lokið með tileinkun til hins 50 ára gamla oddvita á 77. aldurs ári hans, með þökk fyrir langt og hamingjudrjúgt starf, og ósk um rólegt og friðsamlegt æfikvöld og sólarlag. Frá velkunnandi og unnandi sveitungum lians.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.