Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Blaðsíða 7
þeim falið að sækja um 2 — 3000 króna lán til eflingar
búnaði í Norður- og Austuramtinum.
En svo fór að samningar komust á um sumarið 1899
og fjelagið var stofnað á þeim grundvelli, sem P. Br.
hafði lagt. Árið 1901 átti Páll Briem sæti á búnaðar-
þinginu, sem fulltrúi Austuramtsins og vann þar ósleiti-
lega, en á síðasta búnaðarþingi var hann kosinn í stjórn
landsbúnaðarfjelagsins, þótt hann ætti heimili hjer nyrðra,
í þeirri von að hann flyttist til Reykjavíkur og gæti tekið
verulegan þátt í stjórnarstörfunum. Mun honum nú hafa
verið ætluð forstaða fjelagsins framvegis.
Árið 1896 sótti Sigurður Sigurðsson frá Draflastöðum
um styrk til garðyrkjunáms af jafnaðarsjóði. Var honum
veittur styrkurinn með því skilyrði, að tillögu amtmanns,
að hann kynnti sjer ítarlega skógrækt. Þegar hann kom
heim frá Norvegi fjekk hann styrk af jafnaðarsjóði til
þess, að rannsaka líf og lífsskilyrði skóganna í Fnjóska-
dal og jafnframt gekkst amtmaður fyrir því, að koma á
fót gróðrarstöð hjer á Akureyri, þar sem sjerstaklega
yrði gjörðar tilraunir með að sá og ala upp útlendar og
innlendar trjátegundir. Akureyrarbær gaf stöðinni bæði
land og girðingar og var hún komin í rækt árið 1900.
Hefur hún síðan blómgast ár frá ári og gjört mikið
gagn. Plöntur þaðan hafa reynst miklu betur til gróður-
setningar en útlendar plöntur eins og eðlilegt er, enda
mun sú verða raunin á, að skógyrkja tekst hjer aldrei
með öðru móti en því, að trjen sjeu alin og uppvaxin
frá byrjun í íslenskri jörð og loftslagi. — þegar rituð
verður saga skógyrkjumálsins íslenska, mun Páls Briems
verða minnst, sem frumkvöðuls þess. —
Árið 1899 var það samþykkt af amtsráði Norðuramts-
ins, að það tæki að sjer yfirstjórn Hólaskóla, sem þá var
illa sóttur, búið stórskuldugt og álit skólans þverrandi.
Var auðsætt, að ekki inátti við svo búið standa, en amts-
ráðið leit svo á, að hægra yrði að koma fram umbótum
á skólanum, ef stjórnin væri hjá amtsráðinu einu en ekki
sýslunefndunum. Amtmanni var ljóst, að eina ráðið til