Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Blaðsíða 44
C. Verk,færi.
Ræktunarfjelagið hefur útvegað mörg verkfæri, bæði smærri
og stærri, og látið nota þau við tilraunastöðina á Akureyri.
Skýrsla um árangur þessara tilrauna getur þó eigi orðið svo
greinileg sem æskilegt væri. Til þess hægt sje að dæma um
styrkleika og hve mikla vinnu sje hægt að framkvæma með
verkfærunum, vantar fjelagið enn ýms tæki. Til dæmis vant-
ar kraptmæli, til þess að hægt sje að ákveða hve mikið afi
þurfi, til að draga ýms vekrfæri sem hestum er beitt fyrir.
Það sem hjer verður sagt um verkfæri, er því aðallega byggt
á því, hve þægileg þau hafa virðst í meðferðinni, án þess
að hægt hafi verið að gjöra nákvæmar rannsóknir viðvíkjandi
þeim.
I. Stærri verkfæri sem hestum er beitt fyrir*.
1. Plógar.
Af þeim hafa verið reyndir:
a. Plógur frá Aadals & Haslebrug i Noregi**.
Þessi plógur vegur 74 pd. Er hann mjög ljettur í drætti
og þægilegt að vinna með honum. Plógurinn er allur úr
stáli. Hann virðist vera beztur þeirra plóga, sem reyndir
hafa verið við tilraunastöðina.
b. Eiríkur rauði, heitir plógur, er konsul J. V. Havsteen
gaf fjelaginu. Hann er með trjeás og einskeftur. Þessi
plógur er ljettur og góður garðplógur. Vegur 84 pd.
c. Olafsdalsplóginn þekkja menn vel hjer á landi. Hann er
* Þess skal þakklátlega getið að Annas Berle & Co. hafa lánað oss
verkfæramyndir til prentunar.
** Plógurinn er smíðaður eptir fyrirsögn S. S.